Fara í efni

Sveitarstjórn

444. fundur 04. júní 2026 kl. 15:41 - 16:16 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Þórarinsson aðalmaður
  • Brynhildur Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Haraldur Benediktsson aðalmaður
Fundargerð ritaði: Helga Harðardóttir Verkefnastjóri Umhverfis- og skipulagsdeild
Dagskrá
Samkvæmt 6. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar setti Haraldur Benediktsson fyrsta fund sveitarstjórnar að aflokunum sveitarstjórnarkosningum.

Haraldur Benediktsson bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá auk þess að óska eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá:

Mál nr. 2606005. Tillaga um niðurfellingu sveitarstjórnarfundar. 2606005. Málið verður nr. 6 á dagskránni verði það samþykkt. Samþykkt 7:0

Mál nr. 2605021. Aðalfundur Faxaflóahafna sf. 2026. Málið verður nr. 7 á dagskránni verði það samþykkt. Samþykkt 7:0

Mál nr. 2206050. Tilnefning fulltrúa og varafulltrúa í raflínunefnd um Hotavörðuheiðarlínu. Málið verður nr. 8 á dagskránni verði það samþykkt. Samþykkt 7:0

Mál nr. 2601036. Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026. - Frumvarp til breytinga á hafnalögum. Málið verður nr. 12 á dagskránni verði það samþykkt. Samþykkt 7:0

Umræða og afgreiðsla á máli nr. 5 ráðning sveitarstjóra fer fram fyrir luktum dyrum, líkt og heimilt er til samkvæmt 12. gr. samþykkta. Gert verður hlé á upptöku undir umræðu og afgreiðslu.

1.Kjör oddvita og varaoddvita í samræmi við ákvæði 7. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.

2605027

Kosning til eins árs í senn.
Kosning til eins árs í senn.
A) Kjör oddvita B) Kjör varaoddvita.
Kosning til 1 árs.

A) Guðrún Sigríður Gísladóttir lagði fram tillögu um Harald Benediktsson sem oddvita sveitarstjórnar. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Oddviti tók við stjórnun fundarins.

B) Haraldur Benediktsson lagði fram tillögu um Guðrúnu Sigríði Gísladóttur sem varaoddvita sveitarstjórnar. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

2.Kjör ritara og vararitara.

2605028

Kosning til 4 ára.

Kosning ritara og vararitara.
Framlögð tillaga um Guðbjart Þór Stefánsson sem ritara sveitarstjórnar. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Framlögð tillaga um Einar Þórarinsson sem vararitara sveitarstjórnar. Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

3.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.

2605029

A.Fastanefndir. Nöfn aðalmanna birt í stafrófsröð.

1. Menningar- og markaðsnefnd.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan nefndarinnar:
Kjör þriggja aðalmanna:
Formaður: Brynhildur Stefánsdóttir
Ásdís Björg Björgvinsdóttir
Baldur Þór Ketilsson

Kjör þriggja varamanna:
Birkir Guðlaugsson
Guðjón Þór Grétarsson
Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir

2. Velferðar- og fræðslunefnd
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan nefndarinnar:
Kjör fimm aðalmanna:
Formaður Guðrún Sigríður Gísladóttir
Andrea Ýr Arnarsdóttir
Valborg Ragnarsdóttir
Arney Þyri Guðjónsdóttir
Sigurður Pétur Svanbergsson

Kjör fimm varamanna:
Ásta Jóna Ásmundsdóttir
Guðbjartur Stefánsson
Anton Teitur Ottesen
Birkir Guðlaugsson
Þóra Margrét Júlíusdóttir

3. Kjörstjórn við alþingis- og sveitarstjórnarkosningar.
Kjör þriggja aðalmanna:
Guðmundur Ólafsson formaður
Ásta Marý Stefánsdóttir
Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir

Kjör þriggja varamanna:
Valdís Inga Valgarðsdóttir
Rúnar Vífilsson
Áskell Þórisson

4. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan nefndarinnar:
Kjör fimm aðalmanna:
Formaður: Bjarki Borgdal
Varaform: Einar Þórarinsson
Björgvin Helgason
Ása Hólmarsdóttir
Þóra Margrét Júlíusdóttir

Kjör fimm varamanna:
Erna Elvarsdóttir
Anton Teitur Ottesen
Brynhildur Stefánsdóttir
Róbert Eyvar Ólafsson
Katrín Rós Sigvaldadóttir

5. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan nefndarinnar:
Kjör fimm aðalmanna:
Formaður: Guðjón Jónasson
Varaformaður: Guðbjartur Stefánsson
Róbert Eyvar Ólafsson
Inga María Sigurðardóttir
Vignir Már Sigurjónsson

Kjör fimm varamanna:
Jón Þór Marinósson
Guðrún Sigríður Gísladóttir
Bergþór Helgason
Andrea Ýr Arnarsdóttir
Hildur Jónsdóttir

B. Stjórnir og samstarfsnefndir.

1.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið Höfði. Einn fulltrúi og annar til vara í stjórn Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Höfða skv. samningi við samstarfssveitarfélög.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalmaður Helgi Pétur Ottesen
Varamaður Björn Bjarki Þorsteinsson

2.
Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands. Einn fulltrúi í fulltrúaráð, skv. lögum nr. 68/1994 um Eignarhaldsfélagið Brunabótafélag Íslands.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Fulltrúi Birkir Snær Guðlaugsson

3.
Faxaflóahafnir sf. Einn aðalmaður og annar til vara í stjórn Faxaflóahafna sf. skv. ákvæðum félagssamnings og skv. hafnalögum nr. 61/2003.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Haraldur Benediktsson
Varafulltrúi Guðrún Sigríður Gísladóttir
Sameiginlegur fulltrúi Hvalfjarðarsveitar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar: Páll S. Brynjarsson.

4.
Byggðasafnið í Görðum. Vegna málefna Byggðasafnsins í Görðum. Einn fulltrúi og annar til vara í menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar, sbr. skipulagsskrá Byggðasafnsins í Görðum.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Brynhildur Stefánsdóttir
Varafulltrúi Guðjón Þór Grétarsson

5.
Heilbrigðisnefnd. Einn fulltrúi og annar til vara í sameiginlega heilbrigðisnefnd Vesturlands skv. lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Fulltrúi Arney Þyrí Guðjónsdóttir
Varafulltrúi Inga María Sigurðardóttir

6.
Hitaveitufélag Hvalfjarðar sf. Einn fulltrúi í stjórn og annar til vara, samkvæmt samþykktum félagsins.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Björn Bjarki Þorsteinsson
Varafulltrúi Sæmundur Víglundsson

7.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga. Samkvæmt samþykktum Sambands íslenskra sveitarfélaga kýs sveitarstjórn aðal- og varafulltrúa á landsþing sambandsins.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Haraldur Benediktsson
Varafulltrúi Guðrún Sigríður Gísladóttir

8.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Sveitarstjórn kýs aðal- og varafulltrúa í stjórn og á aðalfund samkvæmt lögum samtakanna.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa í stjórn:
Aðalfulltrúi Guðrún Sigríður Gísladóttir
Varafulltrúi Haraldur Benediktsson

9.
Vatnsveitufélag Hvalfjarðar sf. Kosið er í stjórn félagsins til eins árs í senn í samræmi við ákvæði sameignarfélagssamnings.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Helga Harðardóttir
Varafulltrúi Björn Bjarki Þorsteinsson

10.
Yfirnefnd fjallskilamála. Einn fulltrúi og annar til vara.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Baldvin Björnsson
Varafulltrúi Guðbjartur Þór Stefánsson

11.
Þróunarfélag Grundartanga ehf. Einn fulltrúi tilnefndur til setu í stjórn og annar til vara.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalfulltrúi Haraldur Benediktsson
Varafulltrúi Helgi Pétur Ottesen

12.
Snorrastofa. Einn fulltrúi tilnefndur til setu og annar til vara.
Kjör eins fulltrúa (á móti Skorradalshreppi)
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan aðalfulltrúa:
Fulltrúi Brynhildur Stefánsdóttir
Varafulltrúi Ásdís Björg Björgvinsdóttir

13.
Öldungaráð. Í öldungaráði sitja sjö fulltrúar. Þrír kosnir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum og þrír tilnefndir af félagi eldri borgara, auk eins fulltrúa frá heilsugæslunni. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og sveitarstjórnar.

Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalmenn:
Einar Þórarinsson formaður
Helga Jóna Björgvinsdóttir
Katrín Rós Sigvaldadóttir

Varamenn:
Andrea Ýr Arnarsdóttir
Helgi Pétur Ottesen
Vignir Már Sigurjónsson

15.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks. Í samráðshópnum sitja sex fulltrúar. Þrír kosnir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum og þrír tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks.
Framlögð eftirfarandi tillaga um skipan fulltrúa:
Aðalmenn:
Guðrún Sigríður Gísladóttir
Jón Þór Marinósson
Baldur Þór Ketilsson

Varamenn:
Andrea Ýr Arnarsdóttir
Guðbjartur Stefánsson
Þóra Margrét Júlíusdóttir

16.
Sjálfseignarstofnunin Grundarteigur. Einn fulltrúi tilnefndur í stjórn samkvæmt 4. gr. skipulagsskrá sjálfseignarstofnunarinnar.
Bjarki Borgdal

Grunnafjarðarnefnd:
Aðalfulltrúar: Bjarki Borgdal og Svenja Auhage
Varafulltrúar: Birkir Snær Guðlaugsson og Ásta Marý Stefánsdóttir

Sorpurðun Vesturlands:
Á aðlfundi þann 26. mars sl. voru eftirfarandi aðilar skipaðir í stjórn Sorpurðunar Vesturlands. Aðalfulltrúi Andrea Ýr Arnarsdóttir og varafulltrúi Helgi Pétur Ottesen. Þau munu sitja í stjórn til næsta aðalfundar skv. samþykktum. Sveitarstjórn samþykkir að skipa eftirfarandi aðila í stjórn á næsta aðalfundi:
Aðalfulltrúi: Bjarki Borgdal
Varafulltrúi: Andrea Ýr Arnarsdóttir

Fulltrúaráð Fjölbrautarskóla Vesturlands:
Aðalfulltrúi: Guðrún Sigríður Gísladóttir
Aðalfulltrúi: Valborg Ragnarsdóttir
Varafulltrúi: Brynhildur Stefánsdóttir
Varafulltrúi: Guðbjartur Stefánsson

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Ákvörðun um fastan fundartíma sveitarstjórnar.

2605030

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fastir fundartímar sveitarstjórnar verði annan og fjórða fimmtudag hvers mánaðar kl. 15:00."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

5.Ráðning sveitarstjóra.

2605031

Oddviti bar upp eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan ráðningarsamning við Björn Bjarka Þorsteinsson um starf sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit frá 4. júní 2026 til 30. júní 2030. Oddvita falið að undirrita ráðningarsamninginn."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

Bókun Í-lista lögð fram:
"Sveitarstjóri þarf bæði að vera góður samstarfsaðili starfsfólks sveitarfélagsins og vinna að heildinum fyrir alla íbúa þess óháð skoðunum þeirra eða stöðu. Eitt af aðal áherslum íbúa var að opna betur aðgengi þeirra að stjórnsýslunni og vera betur upplýst um það sem fyrirhugað er í sveitarfélaginu. Teljum við eins og áður að Björn Bjarki Þorsteinsson muni sinna því starfi vel."

Umræða og afgreiðsla á málinu fór fram fyrir luktum dyrum, líkt og heimilt er til samkvæmt 12. gr. samþykkta. Gert var hlé á upptöku undir umræðu og afgreiðslu.

6.Tillaga um niðurfellingu sveitarstjórnarfundar.

2606005

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar, sem samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins á að fara fram í annarri viku mánaðarins, verði felldur niður, enda er heimild til þess samkvæmt 8. gr. samþykktanna. Næsti reglubundni fundur sveitarstjórnar mun fara fram 25. júní nk."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

7.Aðalfundur Faxaflóahafna sf 2026.

2605021

Aðalfundarboð.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að Haraldur Benediktsson oddviti fari með umboð og atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundinum sem haldinn verður föstudaginn 12. júní nk. kl.13:30. Vísað er til afgreiðslu undir máli þrjú, þar sem kosið var í stjórn."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

8.Verkefnaráð vegna Holtavörðuheiðarlínu 1.

2206050

Tilnefning fulltrúa og varafulltrúa í raflínunefnd um Hotavörðuheiðarlínu 1.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn staðfestir tilnefningu á Sæmundi Víglundssyni og Helgu Harðardóttur í raflínunefnd."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum

9.Sveitarstjórnarkosningar 2026.

2601007

Fundargerðir kjörstjórnar dags. 31. mars, 10. apríl og 15. maí 2026.
Fundargerðir kjörstjórnar lagðar fram til kynningar.

10.Óbindandi viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa.

2603012

Niðurstaða viðhorfskönnunar.
Samhliða sveitarstjórnarkosningum laugardaginn 16. maí sl. fór fram óbindandi viðhorfskönnun meðal íbúa Hvalfjarðarsveitar um sameiningarmál.

Ótvíræð niðurstaða viðhorfskönnunar lögð fram til kynningar.

Til máls tóku Einar Þórarinsson og Baldur Þór Ketilsson.

11.Staða húsnæðisuppbyggingar í Hvalfjarðarsveit.

2605020

Yfirlit frá HMS.
Yfirlit frá HMS lagt fram til kynningar.

12.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.

2601036

Frumvarp til breytinga á hafnalögum.
Sveitarstjórn vísar málinu til afgreiðslu hjá Faxafóahöfnum.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið - kl. 16:16.

Efni síðunnar