Fara í efni

Sveitarstjórn

191. fundur 24. febrúar 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Brynja Þorbjörnsdóttir 2. varamaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson 1. varamaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Í fjarveru Björgvins Helgasonar, oddvita setti Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti fundinn og bauð sveitarstjórnarfólk velkomið til fundar, var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

Jóhann Þórðarson, endurskoðandi og Kristjana H. Ólafsdóttir, fjármálastjóri sátu fundinn undir dagskrárliðnum "Ársreikningur 2014".

Brynja Þorbjörnsdóttir og Ólafur Ingi Jóhannesson sátu fundinn í forföllum Björgvins Helgasonar og Jónellu Sigurjónsdóttur.

1.Sveitarstjórn - 190

1501006F

Fundargerð framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 51

1502001F

Fundargerð framlögð.
DO. fór yfir og kynnti einstök atriði fundargerðarinnar.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 51 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi til endurnýjunar á hitaveituæð. Ekki þarf að grenndarkynna framkvæmdaleyfið þar sem framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag sbr. 13.gr skipulagslaga 123/2010. Lagt er til að skipulagsfulltrúi vinni málið áfram. Bókun fundar SÁ gerði grein fyrir því að hann sé einn landeigenda sem um er rætt í þessu máli og því óskaði hann eftir því að sveitarstjórn kveði upp úr um hæfi hans til þátttöku í umræðu og afgreiðslu málsins. Samþykkt með 6 atkvæðum að SÁ sé hæfur til að taka þátt í umræðu og afgreiðslu málsins.
    Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir bókun USN nefndar og felur skipulagsfulltrúa að gefa út umbeðið framkvæmdaleyfi."
    Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 51 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila grenndarkynningu á óverulegri breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Ölveri 5, 6, 17 og 26. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir bókun USN nefndar og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram."
    Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 51 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja byggingarleyfi en hvetur jafnframt landeiganda til að deiliskipuleggja svæðið.
    Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.
    Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir bókun USN nefndar og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram."
    Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 51 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfi samkv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum Kúludalsár II og Kúludalsá og landeigendum Innri Hólms. Einnig bendir nefndin á að stofna þarf lóð undir byggingar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn samþykkir bókun USN nefndar og felur byggingarfulltrúa að vinna málið áfram."
    Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

3.4. fundur veitunefndar Hvalfjarðarsveitar.

1502033

Fundargerð framlögð.
SÁ fór yfir efni fundargerðarinnar og kynnti að jarðhitaleit stendur nú yfir í landi Kalastaðakots.

4.4. fundur mannvirkja- og framkvæmdanefndar.

1502038

Fundargerð framlögð.

5.Fjölskyldunefnd - 47

1502002F

Fundagerð framlögð.
ÁH. fór yfir og kynnti einstök atriði fundargerðarinnar.

6.Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2014.

1502041

Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2014 lagður fram til fyrri umræðu.
Jóhann Þórðarson, endurskoðandi fór yfir helstu atriði reikningsins, lagði fram skýringar og fjallaði um þróun í fjármálum sveitarfélagsins.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Hvalfjarðarsveitar 2014 til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn þann 10. mars nk."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

7.Umferðarskipulag Grundartanga

1307017

Erindi sem samþykkt var á 27. fundi USN nefndar, sem haldinn var 27. ágúst 2013, en vantar staðfestingu sveitarstjórnar.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir afgreiðslu USN-nefndar varðandi umferðarskipulag á Grundartanga."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

8.Beiðni um afnot af Fannahlíð 2. júní vegna sumarhátíð skólanna.

1502039

Erindi frá foreldrafélagi Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir erindi Foreldrafélags Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar um gjaldfrjáls afnot af félagsheimilinu Fannahlíð v/ sumarhátíðar skólans með þeim fyrirvara að húsnæðið sé laust til afnota"
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

9.Fundur með sauðfjárbændum við Akrafjall.

1411041

Áður tekið fyrir á 185. fundi sveitarstjórnar.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita og sveitarstjóra að ræða við fulltrúa Akraneskaupstaðar um möguleika samstarfs um staðarval og uppbyggingu skilaréttar vestan Akrafjalls."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

10.Glammastaðir ehf. kt: 480113-0470.

1303047

Frestað á 187. fundi sveitarstjórnar.
Framlagt bréf Pálma Jóhannessonar á Geitabergi þar sem athugasemdir eru gerðar við landamerki Glammastaða og Geitabergs í gögnum sem kynnt hafa verið vegna málsins. Sveitarstjórn samþykkir með 7 greiddum atkvæðum að fela sveitarstjóra að fara yfir erindið með lögmanni sveitarfélagsins.

11.Kjör fulltrúa í stjórn SSV.

1502042

Ósk frá Hjördísi Stefánsdóttur um lausn frá störfum úr stjórn SSV.
Framlagt erindi Hjördísar Stefánsdóttur, sveitarstjórnarfulltrúa þar sem hún óskar eftir lausn frá stjórnarsetu í SSV.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að tilnefna Björgvin Helgason sem fulltrúa Hvalfjarðarsveitar í stjórn SSV og Ásu Helgadóttur sem varamann."
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

12.Reglur og verklag um snjómokstur og hálkueyðingu.

1502044

Endurskoðun á reglum varðandi snjómokstur.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela oddvita, sveitarstjóra og byggingarfulltrúa að fara yfir og endurskoða reglur og verklag um snjómokstur og hálkueyðingu í sveitarfélaginu og skila greinargerð og tillögum þar um til sveitarstjórnar fyrir 1. maí nk.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.

13.Úttekt á stjórnsýslu Hvalfjarðarsveitar.

1502045

Verkefnatillaga verður lögð fram á sveitarstjórnarfundinum
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að fela sveitarstjóra að ganga til samninga við R3-Ráðgjöf ehf. um úttekt á stjórnskipulagi og rekstri stjórnsýslu Hvalfjarðarsveitar.
Tillagan samþykkt samhljóða 7-0.
Viðauki 3. Sveitarstjóri lagði fram tillögu að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2015 vegna framangreindrar tillögu að fjárhæð kr. 526.000- á 21001-4390. Kostnaði verði mætt af óvissum útgjöldum 21085-5971.
Viðauki 3 borinn undir atkvæði og samþykktur samhljóða 7-0.

14.123. og 124. fundir Heilbrigðisnefndar Vesturlands.

1502040

Fundargerðir framlagðar.

15.114. fundur stjórnar SSV, 28. janúar 2014.

1502043

Fundargerð framlögð.

16.Skýrsla sveitarstjóra.

1502013

Skúli Þórðarson, sveitarstjóri gerði grein fyrir helstu störfum sínum frá síðasta reglulega sveitarstjórnarfundi.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar