Fara í efni

Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd 2013-2022

51. fundur 17. febrúar 2015 kl. 15:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
  • Guðjón Jónasson aðalmaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson aðalmaður
  • Ólafur Melsted embættismaður
  • Ása Hólmarsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Ása Hólmarsdóttir
Dagskrá

1.Framkvæmdaleyfi - Skorholt

1501012

OR óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar á hluta af hitaveituæð sem liggur frá Skorholti og að Læk. Samþykki landeigenda Skorholts, Skipaness og Læk liggur fyrir. Framkvæmdatími er áætlaður frá mars til nóv. 2015. Framkvæmdin er í samræmi við Aðalskipulag.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði framkvæmdaleyfi til endurnýjunar á hitaveituæð. Ekki þarf að grenndarkynna framkvæmdaleyfið þar sem framkvæmdin er í samræmi við aðalskipulag sbr. 13.gr skipulagslaga 123/2010. Lagt er til að skipulagsfulltrúi vinni málið áfram.

2.Kynning á stöðu úrgangsmála í Hvalfjarðarsveit

1404044

Formaður USN nefndar ásamt skipulags- og umhverfisfulltrúa og byggingarfulltrúa áttu fund með fulltrúum IGF föstudaginn 6.feb. sl. þar sem m.a var rætt um fyrirkomulag vorhreinsunar, fjölnota poka og fræðslu til íbúa og sumarhúsaeigenda um úrgangsmál og flokkun.
Byggingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa falið að taka saman upplýsingar af reynslu vorhreinsunar síðustu ára og leggja fram á næsta fundi nefndarinnar.
Málið áfram í vinnslu nefndarinnar.

3.Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.

1306002

Á 50. fundi USN nefndar var skipulagsfulltrúa falið að vinna að umsögn í samvinnu við nefndarmenn fyrir 2. febrúar.
Erindi til SSH lagt fram og kynnt.

4.Tillaga að Landskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar.

1501002

Á 50. fundi USN nefndar var skipulagsfulltrúa falið að vinna að umsögn í samvinnu við nefndarmenn fyrir 13. febrúar.
Erindi til Skipulagsstofnunar lagt fram og kynnt.

5.Umhverfisnefnd Heiðarskóla.

1502015

Erindi barst frá Umhverfisnefnd Heiðarskóla dags. 23.jan. 2015 varðandi dag umhverfisins og fjölnota poka.
USN nefnd þakkar umhverfisnefnd Heiðarskóla fyrir erindið. Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir fundi með umhverfisnefnd Heiðarskóla þar sem nánar verður farið yfir þessi mál.
Formanni falið að óska eftir fundartíma.

6.Umsókn Fjarðarskeljar um tilraunaleyfi fyrir kræklingarækt við Saurbæ í Hvalfirði.

1501001

Formaður USN nefndar og umhverfis- og skipulagsfulltrúi sendu umsögn til MAST 1. febrúar 2015.
Umsögn lögð fram ásamt svörum Fjarðarskeljar dags. 10.feb. 2015.

7.Ölver 9 - Viðbygging

1401018

Á 50. fundi USN nefndar var lagt til við sveitarstjórn að heimila grenndarkynningu á óverulegri breytingu deilskipulags Ölvers á lóð nr. 9. Ranglega var farið með stærð á stækkun sumarhúss sem sagðir voru 25 fm. en eru 40 fm. Tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags heimilar að reisa eitt sumarhús ásamt geymslu/verkfærahúsi innan byggingarreits. Nýtingarhlutfall skal vera að hámarki 0.05 sem samsvarar um 170 fm. á umræddri lóð.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila grenndarkynningu á óverulegri breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Ölveri 5, 6, 17 og 26. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram.

8.Óveruleg breyting á deiliskipulagi vestursvæðis við Grundatanga

1502019

Lögð er fram beiðni um óverulega breytingu deiliskipulags er varðar stækkun byggingareits á lóðinni Klafastaðavegur 4.
USN nefnd frestar afgreiðslu málsins þar til fullnægjandi gögn hafa borist.

9.Litli Sandur - Hvalstöð - mhl. 44

1502018

Á Litla Sandi - Hvalstöð er sótt um að byggja 270 fm nýbyggingu við kjötvinnsluna. Um er að ræða stálgrindarhús með yleiningum.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykkja byggingarleyfi en hvetur jafnframt landeiganda til að deiliskipuleggja svæðið.
Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

10.Hólabrú - starfsmannaaðstaða - vélaverkstæði

1502022

Sótt er um að byggja starfsmannaaðstöðu 128 fm og vélageymslu 360 fm í malarnámunni Hólabrú í landi Innri Hólms.
USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að grenndarkynna byggingarleyfi samkv. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir eigendum Kúludalsár II og Kúludalsá og landeigendum Innri Hólms. Einnig bendir nefndin á að stofna þarf lóð undir byggingar. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram.

11.Ósk um undanþágu frá skipulagsreglugerð nr. 90/2013 um fjarlægð milli bygginga og vega, Glammastaðir.

1410029

Borist hefur afrit af bréfi Skipulagsstofnunar til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis vegna umsagnar um beiðni um undanþágu frá skipulagsreglugerð, um fjarlægð bygginga frá stofn- og tengivegum, vegna íbúðarhúss í landi Glammastaða.
Lagt fram og kynnt.

12.Erindisbréf nefnda

1111013

Erindisbréf Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefndar Hvalfjarðarsveitar.
Nefndarmönnum falið að kynna sér erindisbréfið fyrir næsta fund og koma með ábendingar um breytingar fyrir næsta fund.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar