Fara í efni

Sveitarstjórn

189. fundur 27. janúar 2015 kl. 16:00 - 18:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Björgvin Helgason oddviti
  • Arnheiður Hjörleifsdóttir varaoddviti
  • Hjördís Stefánsdóttir ritari
  • Jónella Sigurjónsdóttir vararitari
  • Ása Helgadóttir aðalmaður
  • Stefán Ármannsson aðalmaður
  • Daníel Ottesen aðalmaður
Fundargerð ritaði: Skúli Þórðarson sveitarstjóri
Dagskrá
Björgvin Helgason oddviti setti fundinn og bauð sveitarstjórnarmenn velkomna til fundar og var síðan gengið til áður boðaðrar dagskrár.

1.Sveitarstjórn - 188

1501001F

Fundargerðin framlögð.

2.Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50

1501002F

Fundargerðin framlögð.
AH fór yfir og kynnti einstök atriði fundargerðarinnar.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila ekki breytingu aðalskipulags á þeim forsendum að í deiliskipulagi kemur skýrt fram að ekki sé gert ráð fyrir heilsársbúsetu. Einnig er kveðið á um það í skipulagsreglugerð nr. 90/2013 gr.6.2 lið h, er fjallar um frístundabyggð, að föst búseta er óheimil í frístundabyggð. Bókun fundar Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir afgreiðslu USN nefndar og hafnar erindinu.
    Samþykkt samhljóða 7-0.
  • 2.2 1501011 Endurvinnslukort
    Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 Umhverfis- og skipulagsfulltrúi kynnti erindi Náttúru ehf.
    USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að hafna erindinu.
    Bókun fundar Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir afgreiðslu USN nefndar og hafnar erindinu.
    Samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 Niðurstaða Skipulagsstofnunar lögð fram og kynnt. USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt að undangenginni grenndarkynningu fyrir landeiganda Skipaness og Skipaness 2, sbr. 5. mgr. 13. gr. og 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnaframkvæmda við Skipanes að undangenginni grenndarkynningu gagnvart landeigendum Skipaness og Skipaness 2, sbr. 5. mgr. 13. gr. og 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010"
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 6-0.
    SÁ lýsti yfir vanhæfi sínu og vék af fundi við umræðu og afgreiðslu málsins.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 Sótt er um styrk eftir að framkvæmdum er lokið. Nefndin samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að verða við umsókn bréfritara og greiða helming kostnaðar við endurbæturnar, enda er verkið í fullu samræmi við reglur sjóðsins. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framkomna tillögu USN nefndar um að veita Jakobi Svavari Sigurðssyni styrk úr styrktarsjóði vegna endurbóta á vatnslögnum í Steinsholti að fjárhæð allt að kr. 204.000-."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að heimila grenndarkynningu á óverulegri breytingu deiliskipulags sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir Ölveri 5, 6, 17 og 26. Skipulagsfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu deiliskipulags fyrir eigendum Ölvers 5, 6, 17 og 26. og felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 USN nefnd leggur við sveitastjórn að heimila stofnun 3 lóða úr landi Grafar lnr. 133629, Melhagi 2, stærð 1.4 ha og mun sameinast Melhaga lnr. 200319, Jaðar, stærð 2.3 ha, skilgreind sem íbúðarhúsalóð, Akur, stærð 0.7 ha, skilgreind sem annað land. Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir stofnun þriggja lóða úr landi Grafar lnr. 133629, Melhagi 2, stærð 1.4 ha og mun sameinast Melhaga lnr. 200319, Jaðar, stærð 2.3 ha, skilgreind sem íbúðarhúsalóð, Akur, stærð 0.7 ha, skilgreind sem annað land.
    Byggingarfulltrúa falið að vinna málið áfram."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.
  • Umhverfis- skipulags- og náttúruverndarnefnd - 50 USN nefnd leggur til við sveitarstjórn að nýta ákvæði í samningnum við Íslenska Gámafélagið og framlengja hann um eitt ár. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlengingu sorphirðusamnings við Íslenska gámafélagið um eitt ár. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra úrvinnslu málsins."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.

3.3. fundur mannvirkja- og framkvæmdanefndar.

1501030

Fundargerðin framlögð.

4.3. fundur veitunefndar Hvalfjarðarsveitar.

1501031

Fundargerðin framlögð.
SÁ fór yfir og kynnti einstök atriði fundargerðarinnar.

5.Hafnamál við Faxaflóa.

1501028

Erindi frá hafnarstjóra Faxaflóahafna, dagsett 9. janúar sl. þar sem óskað er eftir afstöðu sveitarfélagsins til sameiginlegrar stefnumótunar um hafnamál við Faxaflóa með öðrum sveitarfélögum, íbúum og hagsmunaaðilum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra og oddvita að ræða við bréfritara."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.

6.Þjónustusamningur um ljósleiðarasambönd milli Gagnaveitu Reykjavíkur og Hvalfjarðarsveitar.

1501029

Til samþykktar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan þjónustusamning sveitarfélagsins við Gagnaveitu Reykjavíkur um ljósleiðarasambönd og felur sveitarstjóra undirritun hans."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða 7-0.

7.127. og 128. fundir Faxflóahafna.

1501021

Fundargerðirnar lagðar fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Efni síðunnar