Sveitarstjórn
Dagskrá
Guðrún Sigríður Gísladóttir varaoddviti, í fjarveru oddvita, bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.
1.Sveitarstjórn - 451
2610005F
Fundargerðin framlögð.
2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 71
2610007F
Fundargerðin framlögð.
Til máls tóku: BBM og ÞMJ.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 71 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að Umhverfis- og skipulagsdeild fái til liðs við sig ráðgjafa í umhverfismálum til aðstoðar við mótun tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 um Þynningarsvæði / Varúðarsvæði. Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að Umhverfis- og skipulagsdeild fái til liðs við sig ráðgjafa í umhverfismálum við mótun tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 um varúðarsvæði.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 71 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Fellsenda verði auglýst samkvæmt 31. gr., sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að tillaga að deiliskipulagi Fellsenda verði auglýst samhliða samkvæmt 41. gr. sömu laga. Með tillögunum verði kynnt sameiginlegt umhverfismat og samgöngumat.
Nefndin leggur jafnframt til við sveitarstjórn að fallið verði frá sérstakri kynningu deiliskipulagstillögunnar á vinnslustigi samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að allar meginforsendur deiliskipulagsins séu settar fram í aðalskipulagsbreytingunni sem unnin er samhliða, þar á meðal um landnotkun, eðli og hámarksumfang uppbyggingar, samgöngutengingar og umhverfis- og verndarsjónarmið. Deiliskipulagið felur í sér nánari útfærslu þessara forsendna.
Við matið er jafnframt litið til þess að sameiginleg skipulagslýsing hefur verið kynnt og meginforsendur uppbyggingarinnar kynntar við vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar, með tækifæri almennings og umsagnaraðila til að koma á framfæri sjónarmiðum. Tillögurnar verða auglýstar samhliða.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn samþykkir að breyting á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Fellsenda verði auglýst samkvæmt 31. gr., sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að tillaga að deiliskipulagi Fellsenda verði auglýst samhliða samkvæmt 41. gr. sömu laga. Með tillögunum verði kynnt sameiginlegt umhverfismat og samgöngumat. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að fallið verði frá sérstakri kynningu deiliskipulagstillögunnar á vinnslustigi samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn telur að allar meginforsendur deiliskipulagsins séu settar fram í aðalskipulagsbreytingunni sem unnin er samhliða, þar á meðal um landnotkun, eðli og hámarksumfang uppbyggingar, samgöngutengingar og umhverfis- og verndarsjónarmið. Deiliskipulagið felur í sér nánari útfærslu þessara forsendna. Við matið er jafnframt litið til þess að sameiginleg skipulagslýsing hefur verið kynnt og meginforsendur uppbyggingarinnar kynntar við vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar, með tækifæri almennings og umsagnaraðila til að koma á framfæri sjónarmiðum.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 71 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna í samræmi við framkomnar athugasemdir og viðbrögð nefndarinnar við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins að nýju í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Við afgreiðslu USNL-nefndar á 71. fundi sínum þann 4. nóvember sl., fjallaði nefndin um athugasemdir / umsögn HMS í Skipulagsgátt frá 12. október 2026, vegna yfirferðar stofnunarinnar á deiliskipulagi Þórisstaða L133217 og Þórisstaða 2 L233003, sem sveitarstjórn samþykkti að auglýsa þann 29. september 2026.
Undir liðnum „Minjar“ kom fram í bréfi HMS að aðlaga þurfi afmörkun byggingarreita á lóðum 30b og 31b sem nái inn á minjar og helgunarsvæði þeirra, sbr. einnig umsögn Minjastofnunar Íslands.
Í bókun USNL-nefndar kom fram að til að koma til móts við athugasemdir HMS og Minjastofnunar Íslands, um minjar innan byggingarreita, verði byggingareitum breytt, þannig að minjar verið utan reits og stærsti hluti helgunarsvæðis einnig.
Í kjölfar afgreiðslu USNL-nefndar hafa starfmann Umhverfis- og skipulagsdeildar verið í samskiptum við aðila málsins og liggur nú fyrir tillaga um að endurskoða afgreiðslu USNL-nefndar hvað varðar minjar innan byggingareita.
Lagt er til að í breytingunni felist að umræddir byggingarreitir haldist óbreyttir, en að byggingarleyfi verði ekki gefið út fyrr en minjarnar hafi verið mældar upp og heimild Minjastofnunar vegna þeirra liggi fyrir.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa afgreiðslu vegna deiliskipulags Þórisstaða aftur til USNL-nefndar til frekari vinnslu og eftir atvikum í samráði við landeiganda."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: EÞ
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 71 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að fyrirhuguð hækkun húss að Bröttukinn 6 umfram heimildir gildandi deiliskipulags geti ekki talist óveruleg breyting. Beiðni um afgreiðslu málsins er sem óveruleg deiliskipulagsbreyting. Nefndin telur ekki tilefni til að víkja frá gildandi skilmálum um 5,6 m hámarkshæð húsa og er erindinu því hafnað.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd vill benda á þann möguleika að félag sumarhúsaeigenda á svæðinu í samstarfi við landeiganda, taki deiliskipulag svæðisins til endurskoðunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að hafna erindinu.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3.Sameiginlegur fundur öldungaráðs og sveitastjórnar
2611015
Á fund sveitarstjórnar mættu fulltrúar frá Öldungaaráði Hvalfjarðarsveitar þau Marteinn Njálsson varaformaður ráðsins, Sigríður Rafnsdóttir, Klara Hreggvisðdóttir og Katrín Rós Sigvaldadóttir. Formaður ráðsins, Einar Þórarinsson, situr fundinn sem fulltrúi í sveitarstjórn og Freyja Þöll Smáradóttir deildarstjóri velferðar- og fræðsludeildar.
Kynntar voru og framlagðar áherslur Öldungaráðs, sjá í fylgigögnum fundargerðar.
Sveitarstjórn þakkar fulltrúum Öldungaráðs fyrir góða framsögu og gott samtal.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að vísa fram komnum ábendingum Öldungaráðs er snúa að vinnu við fjárhagsáætlun 2027 til þeirrar vinnu sem nú er í gangi á milli umræðna og einnig verði skjalið sent til viðkomandi fagnefnda til umfjöllunar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku Einar, Marteinn, Sigríður og Klara fulltrúar Öldungaráðs.
Auk þess tóku til máls: GSG, ÞMJ og BÞ.

4.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Framlagðar tillögur að Viðaukum við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026 nr. 42 til 44.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir sbr. samþykkt á síðasta fundi viðauka nr. 42 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 5.000.000 kr. vegna styrkumsóknar frá Garða- og Saurbæjarprestkalli vegna 70 ára
vígsluafmælis kirkjunnar árið 2027. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 43 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð -97.201.116 kr. vegna hækkunar á arðgreiðslum frá Faxaflóahöfnum sf. umfram það sem gert var ráð fyrir. Breytingin kemur til hækkunar á handbæru fé."

"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 44 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 100.000 kr. vegna stuðnings til brunamála og almannavarna. Breytingin kemur til
lækkunar á handbæru fé."

5.Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili - stækkun.
2410008
Framlagt erindi frá framkvæmdastjóra Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis varðandi aðkomu eigenda vegna fyrirliggjandi kostnaðs við skipulagsvinnu vegna fyrirhugaðrar stækkunar.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrir sitt leyti þátttöku í kostnaði vegna skipulagsvinnu á árinu 2026 í tengslum við fyrirhugaða stækkun Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akranesi.
Hlutdeild Hvalfjarðarsveitar í kostnaðinum nemur 10% af heildarkostnaði við umrædda skipulagsvinnu, þó að hámarki 900.000 kr.
Fyrir liggur að svigrúm er innan samþykktrar fjárhagsáætlunar Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2026 til að mæta þessum útgjöldum og því er ekki þörf á sérstökum viðauka við fjárhagsáætlun vegna þeirra."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: BÞ og BS

6.Endurbætur á Höfða.
2008006
Framlagt erindi varðandi umsókn í Framkvæmdasjóð aldraða á árinu 2027 - Erindi frá framkvæmdastjóra Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis til eigenda.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrir sitt leyti aðild að umsókn Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis á Akranesi, um styrk úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2027 vegna fyrirhugaðra framkvæmda við heimilið.
Áætluð hlutdeild Hvalfjarðarsveitar í kostnaði vegna framkvæmdanna nemur 1.250.779 kr.
Sveitarstjórn samþykkir jafnframt gert verði ráð fyrir framangreindri fjárhæð við gerð fjárhagsáætlunar Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2027."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: BÞ

7.Starfsemi og fjármögnun Þróunarfélags Grundartanga.
2203042
Framlagt erindi frá Þróunarfélagi Grundartanga ehf. varðandi stuðning til félagsins á árinu 2027.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita áframhaldandi stuðning til Þróunarfélags Grundartanga fyrir árið 2027 að fjárhæð 15 mkr.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita áframhaldandi stuðning til Þróunarfélags Grundartanga fyrir árið 2027 að fjárhæð 15 mkr.
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2027-2030.
2606022
Fyrri umræða um fjárhags- og framkvæmdaáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árin 2027 til 2030.
Sveitarstjóri fór yfir og kynnti forsendur fjárhags- og framkvæmdaáætlunar fyrir árin 2027-2030.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir eftirfarandi álagningu gjalda á árinu 2027:
Álagning útsvars verði 14,14%
Álagning fasteignaskatts verði:
A-skattflokkur 0,32% af fasteignamati.
B-skattflokkur 1,32% af fasteignamati.
C-skattflokkur 1,65% af fasteignamati.
Almennar gjaldskrár hækki um 2,5% sbr. yfirlýsingu þar um, vísitölutenging verði aftengd þar sem við á í ljósi þess.
Þá samþykkir sveitarstjórn að vísa fjárhagsáætlun 2027-2030 til síðari umræðu í sveitarstjórn sem og að halda kynningarfundi um framkomna áætlun mánudaginn 16. nóvember n.k."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tóku: BÞ, ÞMJ, BS, EÞ.

9.Ósk um tímabundið leyfi frá störfum í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
2611018
Framlagt erindi frá Haraldi Benediktssyni oddvita sveitarstjórnar þar sem óskað er eftir tímabundnu leyfi frá störfum í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar.
Erindið framlagt og varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:
"Sveitarstjórn hefur verið upplýst um tímabundin forföll oddvita vegna veikindaleyfis.
Með vísan til 13. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 7. gr. samþykktar um stjórn Hvalfjarðarsveitar nr. 692/2022 mun kjörinn varaoddviti gegna störfum oddvita meðan forföllin vara.
Ekki er um breytingu á kjöri oddvita eða varaoddvita að ræða, heldur tímabundna tilhögun vegna forfalla oddvita."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Sveitarstjórn sendir hlýjar kveðjur til oddvita með von um góðan bata.

10.Starfsmannamál - skipurit Hvalfjarðarsveitar.
2611017
Rætt um skipurit og starfsmannamál.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu að bókun:
"Sveitarstjórn samþykkir að stofnað verði tímabundið 100% starf verkefnastjóra á umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar vegna sérstaks átaksverkefnis á árinu 2027. Starfið verði tímabundið til tólf mánaða, og heyri undir deildarstjóra umhverfis- og skipulagsdeildar.
Deildarstjóra umhverfis- og skipulagsdeildar er veitt heimild til að annast ráðningu í starfið í samráði við sveitarstjóra, í samræmi við gildandi reglur og fjárheimildir sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók: ÞMJ.

"Sveitarstjórn samþykkir stofnun tímabundins 60% starfs verkefnastjóra á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar frá 1. janúar til 31. desember 2027.
Sveitarstjóra er veitt heimild til að ráða í starfið í samræmi við gildandi reglur og fjárheimildir sveitarfélagsins."

Til máls tók: BS.

"Sveitarstjórn samþykkir að málaflokkurinn menningar- og markaðsmál færist undir beina stjórn
sveitarstjóra í skipuriti frá og með 1. janúar 2027.
Sveitarstjóra er jafnframt falið að vinna tillögu að uppfærðu skipuriti Hvalfjarðarsveitar, þar sem framangreind breyting ásamt stofnun tímabundinna verkefnastjórastarfa komi fram og leggja hana fyrir sveitarstjórn til umfjöllunar og samþykktar á næstu fundum hennar."

Varaoddviti lagði til eftirfarandi tillögu að bókun:
"Sveitarstjórn samþykkir að ofangreindar samþykktir sem hafa í för með sér kostnaðarauka verði bætt inn í fjárhagsáæltun ársins 2027 við seinni umræðu."

11.Beiðni um fjárstyrk vegna lokaferðar 9. - 10. bekkjar Heiðarskóla 2027.
2610027
Erindinu var frestað á síðasta sveitarstjórnarfundi og í millitíðinni var starfsmönnum falið að ræða við skólastjórnendur og fulltrúa foreldra áður en erindið yrði afgreitt.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og leggur áherslu á mikilvægi þess að nemendur fái tækifæri til að ljúka grunnskólagöngu sinni með ánægjulegri og eftirminnilegri útskriftarferð.
Sveitarstjórn samþykkir að verða við erindinu um stuðning við útskriftarferðina, með þeim fyrirvara að ferðin verði farin innanlands, standi yfir í allt að þrjá daga og sé skipulögð í samstarfi við skólann, með þátttöku kennara og/eða annarra starfsmanna hans.
Með þessari afstöðu vill sveitarstjórn stuðla að því að útskriftarferðir grunnskólanema séu jákvæður og eftirminnilegur þáttur í skólastarfinu, jafnframt því að gæta jafnræðis, hófsemi og samræmis við skipulag og framkvæmd slíkra ferða til framtíðar.
Tekið verði tilliti til þessa í fjárhagsáætlun ársins 2027.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
Þóra Margrét vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu þessa máls og tók því ekki þátt í afgreiðslu.
Til máls tók: BÞK.

12.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.
2610031
Framlagt erindi frá Velferðar- og fræðsludeild.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði þriðjudaginn 24. nóvember nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði þriðjudaginn 24. nóvember nk. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
13.Torfholt - umsagnarbeiðni - gistileyfi í flokki II - H.
2609033
Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi - Umsagnarbeiðni.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Að fenginni umsögn byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra samþykkir sveitarstjórn að veita jákvæða umsögn um útgáfu rekstrarleyfis að Torfholti samkvæmt 10. gr. laga nr. 85/2007. Umhverfis- og skipulagsdeild er falið að senda umsögnina til sýslumannsins á Vesturlandi fyrir hönd sveitarstjórnar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
„Að fenginni umsögn byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra samþykkir sveitarstjórn að veita jákvæða umsögn um útgáfu rekstrarleyfis að Torfholti samkvæmt 10. gr. laga nr. 85/2007. Umhverfis- og skipulagsdeild er falið að senda umsögnina til sýslumannsins á Vesturlandi fyrir hönd sveitarstjórnar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
14.Hafnarfjall 2 - umsagnarbeiðni - flokkur IV - B
2610029
Erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi - Umsagnarbeiðni.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Að fenginni umsögn byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra samþykkir sveitarstjórn að veita jákvæða umsögn um útgáfu rekstrarleyfis að Hafnarfjalli 2 samkvæmt 10. gr. laga nr. 85/2007. Umhverfis- og skipulagsdeild er falið að senda umsögnina til sýslumannsins á Vesturlandi fyrir hönd sveitarstjórnar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
„Að fenginni umsögn byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra samþykkir sveitarstjórn að veita jákvæða umsögn um útgáfu rekstrarleyfis að Hafnarfjalli 2 samkvæmt 10. gr. laga nr. 85/2007. Umhverfis- og skipulagsdeild er falið að senda umsögnina til sýslumannsins á Vesturlandi fyrir hönd sveitarstjórnar.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
15.Ágóðahlutagreiðsla 2026.
2611011
Framlagt erindi frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands. Samkvæmt því verður ekki um útgreiðlsu ágóðahlutar á árinu 2026 að ræða.
16.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.
2601035
Framlögð fundargerð 174. fundar ásamt fylgigögnum.
17.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.
2602017
Framlögð fundargerð 272. fundar.
18.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.
2602001
Framlögð fundargerð 1005. fundar.
Fundi slitið - kl. 16:55.