Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd
Dagskrá
1.Nýjir staðlar Minjastofnunar Íslands fyrir fornleifaskráningu frá árinu 2013
2512014
Lögð fram skýrsla um yfirferð og endurskoðun eldri fornleifagagna í Hvalfjarðarsveit en með þeirri vinnu sem unnin var í tengslum við skýrsluna er nú fengin mun heildstæðari og nákvæmari yfirsýn yfir skráðar fornleifar í sveitarfélaginu, m.a. umfang gömlu heimatúnanna, sem og helgunarsvæði minjanna.
Á fundinn mætti (Teams) Kristjana Vilhjálmsdóttir hjá Fornleifastofnun Íslands ses, og kynnti efni skýrslunnar.

2.Fornminjasjóður - Umsókn
2611012
Tillaga um skráningu minja við sjávarsíðuna í Hvalfjarðarsveit og um möguleika á umsókn í Fornminjasjóð.
Í fljótu bragði sýnast vera um 60 jarðir í Hvalfjarðarsveit sem eiga land að sjó meðfram um 134 km strandlengju og gætu fallið undir verkefnið.
Miðað við fyrirliggjandi gögn og reynslu af sambærilegum verkefnum, gætu leynst allt að 500 fornleifar sem þyrfti að endurskrá og mæla upp, miðað við að tekið yrði 50 m belti víðast hvar en 100 m á þeim svæðum þar sem landbrot er hvað mest/hraðast.
Tillaga er um að skipta verkefninu upp í tvo áfanga sem yrðu unnir á árunum 2027 og 2028, ef styrkur fengist úr Fornminjasjóði og etv. með mótframlagi frá Hvalfjarðarsveit.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd tekur jákvætt í erindið og að sótt verði um styrk í Fornminjasjóð, sem fyrsta skref í tengslum við verkefnið.
3.Framkvæmdasjóður Ferðamannastaða - Umsóknir
2611013
Lagðar fram til kynningar umsóknir Hvalfjarðarsveitar í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða vegna úthlutunar fyrir árið 2027. Umsóknirnar eru annars vegar áframhaldandi uppbygging gönguleiða, náttúruvernd og öryggisúrbætur við fossinn Glym í Botnsá og hins vegar bætt aðgengi, göngutengingar og fræðslumiðlun við Hallgrímslind og Hallgrímsstein í Saurbæ. Verkefnin miða að því að bæta aðstöðu og öryggi gesta, vernda náttúru og menningarverðmæti og styrkja ferðamannastaði í sveitarfélaginu.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd lýsir ánægju með að sótt hafi verið um stuðning við áframhaldandi uppbyggingu við fossinn Glym í Botnsdal og vegna bætts aðgengis í Saurbæ. Nefndin leggur áherslu á mikilvægi verkefnanna fyrir náttúruvernd, öryggi, aðgengi og miðlun menningararfs í sveitarfélaginu.
Umsóknirnar eru lagðar fram til kynningar.

4.Endurskoðun aðalskipulags - Varúðarsvæði
2206043
Óvissa um heimildir jarðareigenda til nýtingar lands og framkvæmda, skilyrði fyrir fastri búsetu og fyrirkomulag umhverfisvöktunar kallar á áframhaldandi vinnu við breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna afnáms þynningarsvæðis iðjuveranna á Grundartanga og endurskoðunar á afmörkun og skilmálum varúðarsvæðis.
Í kjölfar breytinga á starfsleyfum iðjuveranna þarf að skýra forsendur landnotkunar og uppbyggingar innan svæðisins. Hluti verkefnisins er að útfæra framkvæmd og kostnaðarskiptingu í samvinnu sveitarfélagsins og annarra hlutaðeigandi aðila.
Sveitarfélagið hefur leitað eftir aðkomu stjórnvalda og stofnana að málinu í tengslum við aðalskipulagsferlið. Enn liggja þó ekki fyrir nægilega skýrar forsendur til að ljúka mótun skipulagsskilmála. Mikilvægt er að draga úr óvissu íbúa og jarðareigenda um framtíðarnýtingu svæðisins og tryggja að ákvarðanir byggist á viðeigandi umhverfisupplýsingum.
Lagt er til að ráðinn verði verkefnisstjóri fyrir hönd sveitarfélagsins til að afmarka verkefnið, samræma gagnaöflun og samráð og vinna að tillögum um framkvæmd, kostnaðarskiptingu, áframhaldandi málsmeðferð og útfærslu skipulagsskilmála.
Umhverfis- og skipulagsdeild átti nýlega fund (7. október 2026) með fulltrúum Umhverfis- og orkustofnunar um málið á skrifstofu stofnunarinnar í Reykjavík.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að Umhverfis- og skipulagsdeild fái til liðs við sig ráðgjafa í umhverfismálum til aðstoðar við mótun tillögu að breytingu á gildandi aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 um Þynningarsvæði / Varúðarsvæði.
5.Fellsendi L133625 - Aðalskipulagsbreyting og nýtt deiliskipulag.
2602035
Lögð er fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna upplifunarmiðstöðvar í landi Fellsenda, ásamt tillögu að deiliskipulagi, greinargerð og uppdrætti, sameiginlegu umhverfismati og samgöngumati.
Aðalskipulagsbreytingin felur m.a. í sér skilgreiningu á um 16 ha verslunar- og þjónustusvæðis, VÞ22, og göngu-, reið- og hjólatengingar milli Eiðisvatns og Akrafjalls. Deiliskipulagstillagan útfærir nánar fyrirhugaða uppbyggingu fornbílasafns og tengdrar þjónustu, þar á meðal veitingareksturs, sýninga- og veislusala, gistingar með allt að 50 gistiplássum og afþreyingar utandyra. Jafnframt er gert ráð fyrir stígum, undirgöngum undir Hringveg 1 og endurheimt votlendis.
Sameiginleg skipulagslýsing var kynnt í Skipulagsgátt frá 27. febrúar til 20. mars 2026.
Vinnslutillaga aðalskipulagsbreytingarinnar var kynnt frá 8. júlí til 19. ágúst 2026 og kynning á opnum íbúafundi sem haldinn var 10. ágúst s.l.
Fyrir liggur athugun Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu, dags. 27. október 2026 og uppfærð skipulagsgögn.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Fellsenda verði auglýst samkvæmt 31. gr., sbr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að tillaga að deiliskipulagi Fellsenda verði auglýst samhliða samkvæmt 41. gr. sömu laga. Með tillögunum verði kynnt sameiginlegt umhverfismat og samgöngumat.
Nefndin leggur jafnframt til við sveitarstjórn að fallið verði frá sérstakri kynningu deiliskipulagstillögunnar á vinnslustigi samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin telur að allar meginforsendur deiliskipulagsins séu settar fram í aðalskipulagsbreytingunni sem unnin er samhliða, þar á meðal um landnotkun, eðli og hámarksumfang uppbyggingar, samgöngutengingar og umhverfis- og verndarsjónarmið. Deiliskipulagið felur í sér nánari útfærslu þessara forsendna.
Við matið er jafnframt litið til þess að sameiginleg skipulagslýsing hefur verið kynnt og meginforsendur uppbyggingarinnar kynntar við vinnslu aðalskipulagsbreytingarinnar, með tækifæri almennings og umsagnaraðila til að koma á framfæri sjónarmiðum. Tillögurnar verða auglýstar samhliða.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

6.Þórisstaðir; L133217 og Þórisstaðir 2, L 233003-Deiliskipulag
2604022
Lagt fram bréf Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), dags. 12. október 2026, vegna yfirferðar á deiliskipulagi Þórisstaða L133217 og Þórisstaða 2 L233003, sem sveitarstjórn samþykkti 29. september 2026. Deiliskipulagið tekur til frístundabyggðar við Kúhalla og Hjallholt og smávirkjunar í Kúhallará.
Athugasemdir stofnunarinnar varða einkum fjarlægð byggingarreita frá Dragavegi og Kúhallará, afmörkun vatnsbóla og vatnsverndarsvæða, fráveitu og minjavernd.
Á fundinum verður farið yfir viðbrögð sveitarfélagsins við framkomnum athugasemdum HMS og eftir atvikum lagfæringum á skipulagsgögnum.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna í samræmi við framkomnar athugasemdir og viðbrögð nefndarinnar við þeim, og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins að nýju í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun skv. 1. mgr. 42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
7.Hafnarfjall II L174559 - Deiliskipulagsbreyting
2610013
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hafnarfjalls II. Tillagan felur m.a. í sér að tjaldsvæði verði breytt í svæði fyrir gistihús, starfsmannaaðstaða verði færð og núverandi starfsmannahús nýtt sem gistieiningar. Jafnframt er gert ráð fyrir aðstöðuhúsi og malarplani og auknum sveigjanleika í byggingarformi gistieininga innan hótelreits.
Við samanburð á gildandi heimildum og fyrirhuguðum breytingum er rétt að hafa í huga að gildandi deiliskipulag byggir á tveimur deiliskipulagsgögnum, annars vegar upphaflegt deiliskipulag og hins vegar síðari breytingar þess, þar á meðal breyting sem samþykkt var 14. júní 2023 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 19. september 2023. Með þeirri breytingu var bætt við heimild fyrir allt að sex nýjum smáhýsum eða gistihúsum og nýtingarhlutfall hækkað úr 0,026 í 0,028.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að fyrirhuguð breyting á deiliskipulagi Hafnarfjalls II sé veruleg og skuli hljóta meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samræma þarf fyrri útgáfur í eina tillögu. Þótt nýtingarhlutfall haldist óbreytt frá samþykktri breytingu árið 2023 felur tillagan í sér breytta ráðstöfun lands, tilfærslu starfsmannaaðstöðu, breytta notkun bygginga og breytt byggðamynstur. Samanlagt eru breytingarnar taldar hafa umtalsverð áhrif á útlit og form svæðisins.
Nefndin óskar eftir að umsækjandi leggi fram uppfærð skipulagsgögn með skýrum samanburði á gildandi og fyrirhuguðum heimildum. Skýra þarf heildarbyggingarmagn, hámarksfjölda gistieininga, herbergja og gesta, afmörkun byggingarreita og áhrif fyrirhugaðrar uppbyggingar. Jafnframt skal koma fram hvort fyrirhugaðar heimildir komi í stað eldri heimilda eða séu til viðbótar við þær.
Tillagan verði lögð fyrir nefndina að nýju þegar uppfærð gögn liggja fyrir.

8.Brattakinn 6 L 208958 - Deiliskipulagsbreyting
2610034
Lögð fram skipulagsgögn fyrir Bröttukinn 6 í landi Brekku.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að fyrirhuguð hækkun húss að Bröttukinn 6 umfram heimildir gildandi deiliskipulags geti ekki talist óveruleg breyting. Beiðni um afgreiðslu málsins er sem óveruleg deiliskipulagsbreyting. Nefndin telur ekki tilefni til að víkja frá gildandi skilmálum um 5,6 m hámarkshæð húsa og er erindinu því hafnað.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd vill benda á þann möguleika að félag sumarhúsaeigenda á svæðinu í samstarfi við landeiganda, taki deiliskipulag svæðisins til endurskoðunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd vill benda á þann möguleika að félag sumarhúsaeigenda á svæðinu í samstarfi við landeiganda, taki deiliskipulag svæðisins til endurskoðunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
9.Vísindarannsóknir í Hvalfirði.
2610035
Umræður um vísindarannsóknir í Hvalfirði.
Umhverfis- og skipulagsdeild falið að afla upplýsinga um stöðu vísindarannsóknar Rastar í Hvalfirði.
10.Húsnæðisáætlun Hvalfjarðarsveitar.
2201029
Lagt fram erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um endurskoðun húsnæðisáætlana sveitarfélaga fyrir árið 2027. Opnað hefur verið fyrir nýja útgáfu í áætlanakerfi HMS. Helsta breyting frá fyrra ári er nýr flipi með viðbótarspurningum sem sveitarfélögum ber að svara við áætlanagerðina.
Samkvæmt erindinu skulu sveitarstjórnir hafa staðfest endurskoðaða húsnæðisáætlun eigi síðar en 20. janúar 2027.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur umhverfis- og skipulagsdeild að endurskoða húsnæðisáætlun Hvalfjarðarsveitar fyrir árið 2027 og leggja hana fyrir nefndina.
11.Önnur mál í USNL nefnd
1504031
1) Rætt um áherslur varðandi framkvæmdasjóð Ferðamannastaða fyrir árið 2028 / umsókn 2027. Hvaða verkefni verði undirbúin á næsta ári vegna umsóknar haustið 2027.
2)Mælistöð í Hvalfjarðarsveit, ábending frá Umhverfis- og Orkustofnun.
3) Reiðvegir í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Í aðalskipulagi er gert ráð fyrir að reiðleiðir verði endurskoðaðar á skipulagstímabilinu.

Til kynningar og umræðu.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að birta efni skýrslunnar á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar sem og að birta í kortasjá á heimasíðu Hvafjarðarsveitar.
Áfram verði svo unnið með efni skýrslunnar og það kynnt sérstaklega samhliða endurskoðun aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.