Fara í efni

Sveitarstjórn

447. fundur 09. júlí 2026 kl. 15:00 - 16:19 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Haraldur Benediktsson oddviti
  • Guðrún Sigríður Gísladóttir aðalmaður
  • Guðbjartur Þór Stefánsson aðalmaður
  • Einar Þórarinsson aðalmaður
  • Brynhildur Stefánsdóttir aðalmaður
  • Þóra Margrét Júlíusdóttir aðalmaður
  • Baldur Þór Ketilsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri
Dagskrá
Oddviti bauð fundarmenn velkomna og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.

1.Sveitarstjórn - 445

2606004F

2606004F
Fundargerðin framlögð.

2.Sveitarstjórn - 446

2607001F

2607001F
Fundargerðin framlögð.

3.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 92

2606007F

2606002F
Fundargerðin framlögð.

Til máls tók: GS
  • Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 92 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir framlögð hönnunar- og útboðsgögn fyrir nýjan leikskóla. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlögð útboðsgögn eins og þau liggja fyrir frá hönnuðum og vísar málinu til sveitarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar um framhald verkefnisins og næstu skref. Bókun fundar Til máls tóku: BS og HB.

    Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:

    „Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir ekki athugasemdir við framlögð hönnunar- og útboðsgögn sem liggja fyrir vegna leikskólans Skýjaborgar og felur Umhverfis- og skipulagsdeild/verkefnastjóra framkvæmda og eigna að hefja útboðsferli á grundvelli þeirra og eftir atvikum í samstarfi við ráðgjafa í útboðsmálum s.s. Fjársýslu ríkisins. Jafnframt felur sveitarstjórn Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja greiningarvinnu og frumathugun á skipulagi vegna leikskóla á Innnesi/við Krossland.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

4.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64

2606006F

2606006F
Fundargerðin framlögð.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að að auglýsa tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 skv. 2. mgr. 36. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

    BH vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Að mati sveitarstjórnar telst tillagan óveruleg þar sem hún hafi óverulegar breytingar á landnotkun í för með sér og er ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði, sbr. einnig gátlista sem hafður var til hliðsjónar við mat á því hvort aðalskipulagsbreyting gæti talist óveruleg.“
    "Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 og að hún verði kynnt og auglýst skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að nafnið Laxatangi samræmist staðháttum á svæðinu þar sem það er dregið af staðbundnu örnefni innan jarðarinnar Kúludalsár. Nefndin samþykkir erindið og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að annast breytingar á skráningu fasteignarinnar.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir að heiti fasteignarinnar Kúludalsár 4E verði breytt í Laxatanga og felur Umhverfis- og skipulagsdeild að annast breytingar á skráningu fasteignarinnar og að tilkynna Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun um breytta skráningu staðfangs sbr. 1. mgr. 16. greinar laga um skráningu, merki og mat fasteigna nr. 6/2001.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að heimila vinnu við breytingu á skipulagi svæðisins er varðar umræddar lóðir.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir að heimila vinnu við breytingu á skipulagi svæðisins er varðar Lyngmel 13 og 15.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Katanesvegar á Grundartanga með áorðnum breytingum og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    ÞMJ greiðir atkvæði gegn tillögunni og gerir grein fyrir atkvæði sínu með eftirfarandi bókun:
    "Fyrirhugað landeldi á Grundartanga felur í sér mikla óvissu hvað varðar umhverfisleg áhrif á Hvalfjörðinn, samfélagsleg áhrif á sveitarfélagið og staðsetning matvælaframleiðslu í beinu nábýli við mengandi stóriðju verður að teljast gagnrýnisverð."
    Bókun fundar Til máls tóku: ÞMJ, EÞ og BÞK.

    Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Katanesvegar á Grundartanga með áorðnum breytingum og tillögu USNL-nefndar að viðbrögðum við umsögnum/athugasemdum sem bárust á kynningartíma skv. 1. mgr. 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum. ÞMJ og BÞK greiddu atkvæði gegn tillögunni.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að grenndarkynna fyrirhugað skilti fyrir landeiganda Kirkjubóls og Innra-Hólms og afla umsagnar eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar en þessar stofnanir tóku við hlutverki Umhverfisstofnunar er lögð var niður 31. desember 2024. Fyrir liggur jákvæð umsögn Vegagerðarinnar. Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi ef jákvæð niðurstaða grenndarkynningar liggur fyrir og með hliðsjón af umsögn eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Umsókn um leyfi fyrir frístandandi skilti samræmist reglum Hvalfjarðarsveitar um staðsetningu og útlit auglýsingaskilta, samþykktar 25. september 2024 og ákvæði 2.5.1. gr. í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
    Að mati sveitarstjórnar telst tillagan óveruleg þar sem hún hafi óverulegar breytingar á landnotkun í för með sér og er ekki líkleg til að hafa mikil áhrif á einstaka aðila eða hafa áhrif á stór svæði.
    Sveitarstjórn samþykkir að láta grenndarkynna erindið fyrir landeiganda Kirkjubóls og Innra-Hólms og afla umsagnar eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar, skv. 2. mgr. greinar 2.4.2 um samþykkt byggingaráforma í byggingarreglugerð nr. 112/2012 og skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Jafnframt gerir sveitarstjórn ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi ef jákvæð niðurstaða grenndarkynningar liggur fyrir og með hliðsjón af umsögnum eftir atvikum Umhverfis- og Orkustofnunar eða Náttúruverndarstofnunar.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Kross og Krosslands Eystra og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 vegna Kross og Krosslands eystra með áorðnum breytingum er varðar m.a. orðalag í greinargerð vegna legu göngustígs, og tillögu USNL-nefndar að viðbrögðum við umsögnum/athugasemdum sem bárust á kynningartíma skv. 1. mgr. 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkir að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagstofnun til afgreiðslu skv. 2. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.


  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd hafnar því að deiliskipulagstillagan verði auglýst þar sem undirskrift allra lóðarhafa liggur ekki fyrir um samþykki til gistingar í flokki I og II á öllu skipulagssvæðinu skv. ákvæði í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032.




    Bókun fundar Til máls tók: EÞ, ÞMJ, GSG og HB.

    Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Í ljósi þess að undirskriftir allra lóðarhafa liggja ekki fyrir um samþykki til gistingar í flokki II á öllu skipulagssvæðinu skv. ákvæði í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, staðfestir sveitarstjórn bókun USNL-nefndar varðandi málið.
    Lagt fram bréf til sveitarfélagsins frá málsaðila dags. 05.07.2026 þar sem þess er m.a. farið á leit að sveitarstjórn samþykki tillöguna með þeim breytingum að ákvæði um útleigu frístundahúsa í flokki II verði fellt úr deiliskipulaginu. Í ljósi erindis frá málsaðila og þess að USNL-nefnd fjallaði um deiliskipulagstillöguna á fundi sínum þann 02.07.2026 og gerði ekki aðrar athugasemdir en þær sem snéru að útleigu frístundahúsa á svæðinu, samþykkir sveitarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr. 31. og 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Sveitarstjórn samþykkir að falla frá gerð lýsingar á skipulagsverkefninu þar sem allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 3. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að falla frá ítarlegri kynningu tillögunnar, þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Sveitarstjórn samþykkir uppfærslu tillögu með að fella út ákvæði um atvinnustarfsemi á svæðinu, gistingu í flokki II, og heimild til auglýsingar tillögunnar.
    Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að tillagan verði lögð fram til samþykkis á næsta fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar og í framhaldi þess fundar verði skipulagsfulltrúa heimilt að láta auglýsa tillöguna skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 án frekari umfjöllunar sveitarstjórnar."

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagsbreytinguna í landi Kross 1.áfanga, með áorðnum breytingum og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í landi Kross 1.áfanga, með áorðnum breytingum og tillögu USNL-nefndar að viðbrögðum við umsögnum/athugasemdum sem bárust á kynningartíma og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar skv. 1. mgr. 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verður auglýst samhliða á síðari stigum skv. bókun fundar sveitarstjórnar 25. júní s.l.

    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    „Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa skipulagslýsingu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir leikskólalóð í Melahverfi, skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
    Deiliskipulagsbreyting fyrir Melahverfi I og II verður auglýst samhliða breytingu á aðalskipulagi, á síðari stigum skv. bókun fundar sveitarstjórnar 25. júní s.l., sbr. 2. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.“

    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 64 Lagt framt til kynningar. Bókun fundar Lagt framt til kynningar.

5.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.

2505008

Lögð fram til afgreiðslu tillaga að Viðauka nr. 19 við Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 19 við fjárhagsáætlun 2026 að fjárhæð 2.371.145 kr. vegna fjölgunar á fundum umhverfis-, skipulags-, náttúrverndar- og landbúnaðarnefndar m.v. upphaflega áætlun. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fylgiskjöl:

6.Vegamál í Hvalfjarðarsveit.

2606030

Kynnt minnisblað yfir þá þætti sem leggja þarf megináherslu á í samtali við yfirvöld samgöngumála er snerta vegakerfið í Hvalfjarðarsveit.
Til máls tóku: BÞ, BS, GS, GSG, ÞMJ, BÞK og HB.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir fundi með Vegagerðinni um þau samgöngumál sem rakin eru í minnisblaði þessu, með það að markmiði að hefja formlegt samráð um úrbætur á gatnamótum við þjóðveg 1 og Innnesveg, þátttöku sveitarfélagsins í undirbúningi Hvalfjarðarganga II og gerð sameiginlegrar áætlunar um úrbætur á tengivegum og heimreiðum í sveitarfélaginu."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

7.Kjör í fastanefndir, aðrar nefndir, stjórnir og ráð sem sveitarfélagið á aðild að skv. 39. gr. samþykkta um stjórn Hvalfjarðarsveitar.

2605029

Um er að ræða kjör í Almannavarnarnefnd Vesturlands og kjör fulltrúa hvalfjarðarsveitar á fundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Fulltrúi Hvalfjarðarsveitar í Almannavarnarnefnd Vesturlands verði Björn Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri.

Aðalmenn á fundi SSV verði: Haraldur Benediktsson, Guðrún Sigríður Gísladóttir og Þóra Margrét Júlíusdóttir og varamenn verði í sömu röð Guðbjartur Stefánsson, Einar Þórarinsson og Baldur Þór Ketilsson sem verði varamaður ÞMJ.

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Starfsaðstæður kjörinna fulltrúa og nefndarfólks.

2606014

Sveitarstjóri kynnti efni minnisblaðs þar sem farið var yfir þá þætti sem rætt hefur verið um varðandi starfsaðstæður kjörinna fulltrúa.
Til máls tóku: BÞ, BS, EÞ, ÞMJ, BÞK, GSG og HB.

Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að vinna út frá tillögum í minnisblaði sveitarstjóra og vísar kostnaðarauka til gerðar viðauka við fjárhagsáætlun 2026.
Til viðbótar því sem fram kemur í minnisblaði sveitarstjóra verði horft til þeirra möguleika sem gervigreind býður upp á og stendur til boða, bæði gagnvart starfsfólki sem og kjörnum fulltrúum."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Umsagnarbeiðni - Skógarmenn KFUM Fjölskylduhátíð Vatnaskógi.

2606023

Framlagt erindi frá Sýslumanninum á Vesturlandi varðandi umsögn Hvalfjarðarsveitar um tækifærisleyfi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir ekki athugasemd við veitingu tækifærisleyfis vegna Fjölskylduhátíðar í Vatnaskógi, sem halda á í Vatnaskógi 30. júlí til 3. ágúst 2026, með fyrirvara um jákvæða umsögn slökkviliðs, heilbrigðieftirlits og lögreglu."

Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.

2601035

Framlögð til kynningar fundargerð 172. fundar í stjórn Höfða ásamt fylgigögnum.

Fundi slitið - kl. 16:19.

Efni síðunnar