Mannvirkja- og framkvæmdanefnd
Dagskrá
Inga María Sigurðardóttir boðar forföll
1.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar.
2206005
Kynning á erindisbréfi Mannvirkja- og framkvæmdanefndar.
Formaður Mannvirkja- og framkvæmdanefndar fór yfir erindisbréf nefndarinnar. Nefndin leggur til að halda fundi á þriðjudegi í þriðju viku hvers mánaðar kl. 15:30 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, frestur til að skila inn erindum til nefndarinnar er kl. 16 á miðvikudegi fyrir fund. Mannvirkja- og framkvæmdanefnd kýs Vigni Má Sigurjónsson sem ritara nefndarinnar.
2.Íþróttahús - Heiðarborg
2001042
Verkstaða íþróttahússins kynnt.
Farið yfir verkstöðu framkvæmda íþróttahússins við Heiðarborg.
3.Leikskólahúsnæði - Skýjaborg
2202016
Lögð eru fram fullunnin hönnunargögn fyrir nýjan leikskóla, Skýjaborg, ásamt útboðsteikningum.
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd hefur farið yfir framlögð hönnunar- og útboðsgögn fyrir nýjan leikskóla. Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti framlögð útboðsgögn eins og þau liggja fyrir frá hönnuðum og vísar málinu til sveitarstjórnar til endanlegrar ákvörðunar um framhald verkefnisins og næstu skref.
4.Melahverfi III - Gatnaframkvæmd
2409030
Verkstaða gatnaframkvæmda Melahverfis III.
Framkvæmdum miðar vel og eru þær nú á lokastigi. Lokið hefur verið við lagningu allra veitukerfa og frágang burðarlags (mulnings) undir malbik. Samkvæmt verkáætlun verktaka er ráðgert að leggja malbik fimmtudaginn 2. júlí nk. Að því loknu verður unnið við uppsetningu kantsteina, frágang götulýsingar og annan lokafrágang framkvæmdasvæðisins.
5.Viðhalds- og framkvæmdaáætlun 2026 - 2029.
2601026
Verkefnastjóri framkvæmda og eigna fer yfir verkstöðu framkvæmda.
Verkstaða framkvæmda kynnt.
Fundi slitið - kl. 17:30.