Sveitarstjórn
Dagskrá
Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti, bauð fundarfólk velkomið og setti fund skv. fyrirliggjandi dagskrá.
1.Sveitarstjórn - 440
2603011F
Fundargerðin framlögð.
2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61
2603007F
Fundargerðin framlögð.
ÁH fór yfir helstu atriði fundarins.
ÁH fór yfir helstu atriði fundarins.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar og landbúnaðarnefnd telur mikilvægt að vinna við loftslagsstefnu byggi á traustum grunni, þar sem losunarbókhald, mælanleg markmið og skýr aðgerðaáætlun liggja til grundvallar, í samræmi við þær lagakröfur sem gerðar eru til sveitarfélaga. Loftslagsstefna sveitarfélaga nær aðeins til eigin starfsemi.
Nefndin leggur áherslu á að verkefnið verði unnið innan stjórnsýslu sveitarfélagsins, með stuðningi eftir þörfum, og að lögð verði áhersla á uppbyggingu þekkingar og ábyrgðar innan sveitarfélagsins sjálfs. Nefndin leggur til að hafin verði vinna við gerð loftslagsstefnu með hliðsjón af framkomnum tillögum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að hafin verði vinna við gerð loftslagsstefnu með hliðsjón af tillögum nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti veitingu framlengingu framkvæmdaleyfis fyrir borun rannsóknarholu við iðnaðarsvæði Elkem á Grundartanga, um eitt ár til viðbótar, þ.e. til 16. apríl 2027, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir veitingu framlengingu framkvæmdaleyfis fyrir borun rannsóknarholu við iðnaðarsvæði Elkem á Grundartanga, um eitt ár til viðbótar, þ.e. til 16. apríl 2027, á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til að framlögð viðbrögð verði eftir atvikum höfð til hliðsjónar við gerð vinnslustillögu breytingarinnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir og samþykkir bókun nefndarinnar."

Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti merkjalýsinguna með áorðnum breytingum og þær breytingar sem í henni felast.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir merkjalýsinguna með áorðnum breytingum og þær breytingar sem í henni felast."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Skv. ákvæðum 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem segir m.a. í 3. málsgrein, að skipulagsnefnd sé heimilt að falla frá grenndarkynningu ef sýnt er fram á að breyting á deiliskipulagi eða leyfisskyld framkvæmd varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og/eða umsækjanda.
Að mati Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar varðar erindið ekki aðra en sveitarfélagið og umsækjanda.
Nefndin fellur því frá grenndarkynningu og gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi afgreiði erindið.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir og samþykkir bókun nefndarinnar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum/landeigendum þ.e. Kirkjuból 1 L210448 og Innri-Hólmur L133691.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að grenndarkynna erindið skv. 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir aðliggjandi lóðarhöfum/landeigendum þ.e. Kirkjuból 1 L210448 og Innri-Hólmur L133691."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 61 Umhverfis- og skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að óska eftir leiðréttingu á viðauka í samræmi við umræður á fundinum svo takast megi að ljúka verkefninu á árinu 2026. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir viðauka nr. 14 við fjáhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 300.000 kr. vegna vinnu við uppfærslu skráningargagna vegna forminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3.Menningar- og markaðsnefnd - 64
2603013F
Fundargerðin framlögð.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
BSG fór yfir helstu atriði fundarins.
-
Menningar- og markaðsnefnd - 64 Menningar- og markaðsnefnd þakkar kærlega fyrir allar innsendar umsóknir. Alls bárust 9 umsóknir í Menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar.
Nefndin ákvað að styrkja eftirfarandi verkefni:
Sumartónleikar Hallgrímskirkju, upphæð, 250.000.-
Menningardagskrá Hallgrímshátíðar, upphæð, 75.000.-
Barnakór í Hvalfjarðarsveit, upphæð, 225.000.-
Hrútasýning Búnaðarfélags Hvalfjarðar, upphæð, 200.000.-
Eyrarlundur 2026, upphæð, 150.000.-
Menningar- og markaðsnefnd leggur við sveitarstjórn að Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar verði hækkaður við næstu fjárhagsáætlunargerð til að stuðla að fjölbreyttu menningarlífi í sveitafélaginu. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir úthlutun og styrkveitingar nefndarinnar úr Menningarsjóði Hvalfjarðarsveitar 2026. Hækkun á styrk vísað til fjárhagsáætlunargerðar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
4.Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar 2026-2029.
2505008
Viðaukar nr. 11, 12 og 13
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 11 við fjárhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. -83.488.507 vegna aukinna vaxtatekna og fasteignaskatts. Breytingin kemur til hækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 12 við fjárhagsáætlun 2026 þar sem fjárheimildir eru fluttar á milli deilda. Lögfræðikostnaður er áætlaður á einni deild 21048 í upphafi árs, hann er nú færður með viðauka á þær deildir sem hafa þurft að nýta sér lögfræðiþjónustu það sem af er árinu."

"Sveitarstjórn samþykkir viðauka nr. 13 við framkvæmdaáætlun ársins 2026 að fjárhæð 187.500 kr. vegna breytinga á verkefnanúmerum í framkvæmdaáætlun leikskóla. Samhliða er leiðrétting innri leigu og afskrifta. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."

5.Sveitarstjórnarkosningar 2026.
2601007
Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að kjörstaður í Hvalfjarðarsveit vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí nk. verði í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3, Melahverfi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn samþykkir að kjörstaður í Hvalfjarðarsveit vegna sveitarstjórnarkosninga þann 16. maí nk. verði í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3, Melahverfi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6.Lóðaúthlutanir Urðarmelur, Melahverfi
2604016
Tímabilið 11. mars til og með 13. apríl 2026 voru 12 lóðir auglýstar til úthlutunar við Urðarmel í Melahverfi. Það voru 3 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir og 5 fjögurra íbúða raðhúsalóðir eða samtals 12 lóðir fyrir 3 einbýlishús og 28 íbúðir í par- og raðhúsum.
Alls bárust sex lóðaumsóknir og þrjár umsóknir til vara eða samtals níu lóðaumsóknir, þar af ein umsókn um lóð sem ekki var til úthlutunar og því eru átta gildar umsóknir frá samtals fjórum umsækjendum.
Þær lóðir sem einungis einn umsækjandi var um hverja lóð eru eftirfarandi:
Lóðin Urðarmelur nr. 1 (Raðhúsalóð), ein umsókn barst frá Gröfuvinnu ehf., umsóknin er gild.
Lóðin Urðarmelur nr. 6 (Raðhúsalóð), ein umsókn barst frá Gröfuvinnu ehf., umsóknin er gild.
Lóðin Urðarmelur nr. 11 (Parhúsalóð), ein umsókn barst frá Gröfuvinnu ehf., umsóknin er gild.
Lóðin Urðarmelur nr. 13 (Raðhúsalóð), ein umsókn barst frá Gröfuvinnu ehf., umsóknin er gild.
„Sveitarstjórn samþykkir úthlutun lóðanna Urðarmel 1, 6, 11 og 13 til ofangreinds umsækjanda.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Lóðir þar sem umsækjendur voru fleiri en einn þarf að draga um úthlutun og fer útdráttur lóðanna fram á sveitarstjórnarfundi og dregur oddviti sveitarstjórnar um röð umsækjanda viðkomandi byggingarlóða í votta viðurvist, í samræmi við reglur um lóðaúthlutun í Hvalfjarðarsveit.
A. Lóðin Urðarmelur nr. 2 (Parhúsalóð)
Þrjár umsóknir bárust í lóðina, allar gildar, frá eftirtöldum umsækjendum Halldór Darri Guðjónsson, Gröfuvinna ehf. og BG eignir ehf.
Dreginn var út umsækjandi Halldór Darri Guðjónsson, til vara umsækjandi Gröfuvinna ehf.
B. Lóðin Urðarmelur nr. 3 (Parhúsalóð)
Þrjár umsóknir bárust í lóðina, allar gildar, frá eftirtöldum umsækjendum Gröfuvinna ehf., Björn Guðmundsson og Halldór Darri Guðjónsson.
Dreginn var út umsækjandi Björn Guðmundsson, til vara umsækjandi Halldór Darri Guðjónsson.
C. Lóðin Urðarmelur nr. 4 (Parhúsalóð)
Tvær umsóknir bárust í lóðina, báðar gildar, frá eftirtöldum umsækjendum Gröfuvinna ehf. og Björn Guðmundsson.
Dreginn var út umsækjandi Björn Guðmundsson, til vara umsækjandi Gröfuvinna ehf.
"Sveitarstjórn samþykkir ofangreindar lóðaúthlutanir."

F. Lóðirnar Urðarmelur nr. 5, 7 og 9 (einbýlishúsalóðir) og Urðarmelur nr. 15 (raðhúsalóð).
Engar umsóknir bárust og fara lóðirnar því á lista yfir lausar lóðir hjá Hvalfjarðarsveit.
Sveitarstjórn þakkar umsækjendum kærlega fyrir umsóknirnar.
Jökull Helgason, deildarstjóri Umhverfis- og skipulagsdeildar, sat fundinn undir þessum lið.

7.Málstefna Hvalfjarðarsveitar
2604011
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn samþykkir að senda drög að Málstefnu Hvalfjarðarsveitar til umsagnar, til nefnda sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn samþykkir að senda drög að Málstefnu Hvalfjarðarsveitar til umsagnar, til nefnda sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
8.Ósk um endurgjaldslaus afnot af Miðgarði.
2503036
Erindi frá Búnaðarfélagi Hvalfjarðar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Búnaðarfélagi Hvalfjarðar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði vegna aðalfundar félagsins sem haldinn var þann 13. apríl sl. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Búnaðarfélagi Hvalfjarðar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði vegna aðalfundar félagsins sem haldinn var þann 13. apríl sl. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til menningarmála."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
9.Umsagnarbeiðni - rekstur gististaðar, rekstrarleyfi Maison ehf.
2604018
Erindi frá Sýslumanni Vesturlands.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur sveitarstjóra að veita umbeðna umsögn í samræmi við ákvæði 10. gr. laga nr. 85/2007 og í samráði við aðra umsagnaraðila. Metið verði hvort starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála á svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur sveitarstjóra að veita umbeðna umsögn í samræmi við ákvæði 10. gr. laga nr. 85/2007 og í samráði við aðra umsagnaraðila. Metið verði hvort starfsemin sé í samræmi við byggingarleyfi og skipulagsskilmála á svæðinu."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
10.Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.
2407014
Aðalfundarboð.
Aðalfundarboð Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, lagt fram en fundurinn verður haldinn mánudaginn 4. maí nk. kl. 16:30.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur oddvita að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar felur oddvita að fara með umboð sveitarfélagsins á fundinum."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
11.Aðalfundur Landskerfis bókasafna hf. 2026
2604017
Aðalfundarboð ásamt fylgigögnum, ársreikningur og samþykktir.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn samþykkir að Birkir Snær Guðlaugsson fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundi Landskerfis bókasafna hf. sem haldinn verður þriðjudaginn 12. maí nk. kl. 14.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fundurinn falli undir reglur sveitarstjórnar og ákvörðun sveitarstjórnar um fundi eða ráðstefnur utan Hvalfjarðarsveitar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn samþykkir að Birkir Snær Guðlaugsson fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundi Landskerfis bókasafna hf. sem haldinn verður þriðjudaginn 12. maí nk. kl. 14.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fundurinn falli undir reglur sveitarstjórnar og ákvörðun sveitarstjórnar um fundi eða ráðstefnur utan Hvalfjarðarsveitar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Fundi slitið - kl. 16:17.