Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Sveitarstjórn - 439
2603006F
Fundargerðin framlögð.
2.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 90
2603012F
Fundargerðin framlögð.
-
Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 90 Mannvirkja- og framkvæmdanefnd leggur til við sveitastjórn að samþykkja framlagðan viðauka nr. 10 á grundvelli tilboðs frá K16 ehf vegna framkvæmda í áfanga 3 og tækjakaupa í þreksal. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir framlagðan viðauka nr. 10 við framkvæmdaáætlun ársins 2026 að fjárhæð 44.000.000 kr. vegna tækjakaupa og framkvæmda 3. áfanga
íþróttahússins við Heiðarborg. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3.Velferðar- og fræðslunefnd - 10
2604001F
Fundargerðin framlögð.
HH fór yfir helstu atriði fundarins.
HH fór yfir helstu atriði fundarins.
-
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Ráðningarnefnd hefur lokið úrvinnslu umsókna, viðtölum og leggur fram tillögu að ráðningu í starf skólastjóra Heiðarskóla á grundvelli framlagðrar samantektar. Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir tillögu ráðningarnefndar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir, á grundvelli tillögu ráðningarnefndar og Velferðar- og fræðslunefndar, að ráða Önnu Margréti Tómasdóttur í stöðu skólastjóra grunnskólasviðs, Heiðarskóla, frá og með 1. ágúst 2026. Sveitarstjóra er falið að ganga frá ráðningarsamningi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir breytingar á erindisbréfi öldungaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir framlagðar breytingar á erindisbréfi öldungaráðs."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir leiðbeinandi verklagsreglur til sveitarstjórnar og nefnda um barnvænt hagsmunamat. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir leiðbeinandi verklagsreglur um barnvænt hagsmunamat. Vísað til kynningar hjá fastanefndum sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærða forvarnarstefnu Hvalfjarðarsveitar. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir uppfærða forvarnarstefnu Hvalfjarðarsveitar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir drög að breytingum á stefnu Hvalfjarðarsveitar gegn einelti, kynbundnu og kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir framlagðar breytingar á stefnu Hvalfjarðarsveitar gegn einelti, kynbundnu og kynferðislegri áreitni og ofbeldi."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Velferðar- og fræðslunefnd - 10 Farið yfir drög að útboðsgögnum vegna skólaaksturs, sem unnin hafa verið í samstarfi við Fjársýslu ríkisins. Deildarstjóra velferðar- og fræðsludeildar er falið að vinna útboðsgögnin áfram, út frá umræðum á fundinum, til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlögð drög útboðsgagna vegna skólaaksturs í Hvalfjarðarsveit og að skólaakstur verði boðinn út á grundvelli þeirra. Sveitarstjóra og deildarstjóra Velferðar- og fræðsludeildar er falið að klára vinnslu útboðsgagna og í kjölfarið bjóða verkefnið út."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
BSG vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.
4.Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar.
2509017
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar sem á að vera haldinn miðvikudaginn 22. apríl nk., sbr. ákvörðun sveitarstjórnar í upphafi kjörtímabils, verði færður fram um einn dag og haldinn þriðjudaginn 21. apríl nk. til að tryggja að unnt verði að fullmanna fundinn".
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar sem á að vera haldinn miðvikudaginn 22. apríl nk., sbr. ákvörðun sveitarstjórnar í upphafi kjörtímabils, verði færður fram um einn dag og haldinn þriðjudaginn 21. apríl nk. til að tryggja að unnt verði að fullmanna fundinn".
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
5.Ósk um niðurfellingu leigu af Miðgarði.
2603036
Erindi frá Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði frá mánudegi 20. júlí til og með föstudags 24. júlí 2026, frá klukkan 09:00-12:00 vegna söng- og leiklistarnámskeiðs ætlað börnum í Hvalfjarðarsveit, 6-13 ára. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til íþrótta- og æskulýðsmála".
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að veita Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar endurgjaldslaus afnot af félagsheimilinu Miðgarði frá mánudegi 20. júlí til og með föstudags 24. júlí 2026, frá klukkan 09:00-12:00 vegna söng- og leiklistarnámskeiðs ætlað börnum í Hvalfjarðarsveit, 6-13 ára. Afnotin verði bókuð til tekna á félagsheimilið og til gjalda á styrkveitingu til íþrótta- og æskulýðsmála".
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
6.Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026.
2603039
Kjörskrá lögð fram.
Kjörskrá mun liggja frammi, almenningi til sýnis, á afgreiðslutíma skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, stjórnsýsluhúsinu, Innrimel 3, Melahverfi, frá og með 13. apríl 2026 til kjördags.
7.Opinber þjónusta og jöfnun aðgengis.
2511027
Stefna um opinbera þjónustu, drög til umsagna og ábendinga ásamt aðgerðatillögum.
Erindi framlagt.
8.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.
2601036
Frumvarp til laga um lagareldi - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, lögum um fiskrækt og lögum um Fiskræktarsjóð - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, nr. 48-2011 (vindorka og verndarflokkur) - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna - umsagnarbeiðni.
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits) - umsagnarbeiðni.

Erindi framlögð og sveitarstjóra falið að senda inn umsögn við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.
9.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.
2602001
Fundargerð 996. fundar.
Fundargerðin framlögð.
10.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Heilbrigðisnefnd Vesturlands.
2602042
Fundargerð 201. fundar ásamt fylgigögnum.
Fundargerðin ásamt fylgigögnum framlögð.
Fundi slitið - kl. 15:23.
Oddviti óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi málum á dagskrá:
Mál nr. 2603012F - Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 90. fundur. Málið verður nr. 2 á dagskránni, verði það samþykkt, ásamt afgreiðslumáli nr. 2.1.
Samþykkt 7:0
Mál nr. 2604001F - Velferðar- og fræðslunefnd - 10. fundur. Málið verður nr. 3 á dagskránni, verði það samþykkt, ásamt afgreiðslumálum nr. 3.1., 3.3., 3.4., 3.6, 3.7, 3.9., og 3.10.
Samþykkt 7:0
Mál nr. 2509017 - Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar. Málið verður nr. 4 á dagskránni, verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0
Vegna tæknilegra örðugleika féll upptaka niður.