Velferðar- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Ráðning skólastjóra Heiðarskóla
2601002
Ráðningarnefnd hefur lokið störfum og leggur til við Velferðar- og fræðslunefnd ráðningu á skólastjóra við Heiðarskóla.
Ráðningarnefnd hefur lokið úrvinnslu umsókna, viðtölum og leggur fram tillögu að ráðningu í starf skólastjóra Heiðarskóla á grundvelli framlagðrar samantektar. Velferðar- og fræðslunefnd tekur undir tillögu ráðningarnefndar.
2.Trúnaðarmál Velferðar- og fræðslunefndar
2504003
Trúnaðarmál tekin fyrir.
Trúnaðarmál tekin fyrir í Velferðar- og fræðslunefnd.
3.Erindisbréf Hvalfjarðarsveitar.
2206005
Breytingar á erindisbréfi öldungaráðs.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir breytingar á erindisbréfi öldungaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
4.Starfsreglur Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar
2102009
Uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærðar starfsreglur ungmennaráðs. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
5.Stefna í málefnum fatlaðs fólks
2604001
Hvalfjarðarsveit hefur unnið að þjónustu við fatlað fólk í samræmi við lögbundið hlutverk sitt, en ekki hefur verið mótuð sérstök og virk stefna sveitarfélagsins í málaflokknum. Mikilvægt er að horfa til frekari stefnumótunar og samræmingar til framtíðar.
Stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi leggja til að kannað verði hvort forsendur séu fyrir mótun sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi, sem hvert sveitarfélag eða þjónustusvæði tæki síðan til frekari útfærslu og aðlögunar að sínum aðstæðum.
Stjórnendur í velferðarþjónustu á Vesturlandi leggja til að kannað verði hvort forsendur séu fyrir mótun sameiginlegrar stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi, sem hvert sveitarfélag eða þjónustusvæði tæki síðan til frekari útfærslu og aðlögunar að sínum aðstæðum.
Velferðar- og fræðslunefnd telur jákvætt að unnið verði að því að kanna grundvöll fyrir sameiginlegri stefnu í málefnum fatlaðs fólks á Vesturlandi. Nefndin telur að slík vinna geti styrkt samræmingu, samstarf og framtíðarsýn í þjónustu við fatlað fólk á vesturlandi, með þeirri áherslu að hvert sveitarfélag eða þjónustusvæði geti aðlagað stefnuna að sínum aðstæðum.
6.Leiðbeinandi verklagsreglur til sveitarstjórnar og nefnda um barnvænt hagsmunamat
2603033
Leiðbeinandi verklagsreglur um barnvænt hagsmunamat lagðar fram til afgreiðslu.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir leiðbeinandi verklagsreglur til sveitarstjórnar og nefnda um barnvænt hagsmunamat. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
7.Forvarnarstefna
1508009
Hvalfjarðarsveit er í innleiðingarferli á að gerast barnvænt sveitarfélag. Einn hluti af því er að endurskoða reglur og stefnur sveitarfélagsins. Lögð fram uppfærð forvarnarstefna Hvalfjarðarsveitar með því til hliðsjónar.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir uppfærða forvarnarstefnu Hvalfjarðarsveitar. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
8.Erindi frá leikskólastjóra
2604002
Erindi frá leikskólastjóra vegna stöðu verkefnastjóra vegna færanlegrar kennslustofu í Skýjaborg.
Samþykkt hefur verið að setja niður færanlega kennslustofu við leikskólann í Skýjaborg sem á að taka í gagnið núna í maí. Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir að settur verði verkefnastjóri sem hefði það hlutverk að hafa umsjón yfir færanlegri kennslustofu og aðstoða deildarstjóra Regnbogans í þessu verkefni. Staða verkefnastjóra er samþykkt tímabundið til lok árs 2026.
9.Stefna Hvalfjarðarsveitar gegn einelti, kynbundnu og kynferðislegri áreitni og ofbeldi
2308002
Drög að breytingum á stefnu Hvalfjarðarsveitar gegn einelti, kynbundnu og kynferðislegri áreitni og ofbeldi.
Velferðar- og fræðslunefnd samþykkir drög að breytingum á stefnu Hvalfjarðarsveitar gegn einelti, kynbundnu og kynferðislegri áreitni og ofbeldi. Málinu vísað áfram til samþykktar sveitarstjórnar.
10.Skólaakstur - útboð 2026
2602010
Farið yfir stöðu á útboði um skólaakstur í Hvalfjarðarsveit.
Farið yfir drög að útboðsgögnum vegna skólaaksturs, sem unnin hafa verið í samstarfi við Fjársýslu ríkisins. Deildarstjóra velferðar- og fræðsludeildar er falið að vinna útboðsgögnin áfram, út frá umræðum á fundinum, til endanlegrar afgreiðslu sveitarstjórnar.
11.Öldungaráð
2305056
Lögð fram fundargerð 7. fundar Öldungaráðs sem fram fór þann 12. mars 2026.
Lagt fram.
12.Fundargerðir Ungmennaráðs
2310003
Lögð fram til kynningar 18. fundargerð Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar.
Lagt fram.
13.Fréttir úr skólastarfinu
2602011
Fréttir úr skólastarfi í Hvalfjarðarsveit.
Farið yfir fréttir úr skólastarfinu. Velferðar- og fræðslunefnd fékk kynningu á Mystery Skype. Einnig var sagt frá tónleikunum Söngvavor sem börnin í Skýjaborg tóku þátt í, ásamt öðrum leikskólum á Akranesi.
14.Frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri
2603017
Hjá Gæða- og eftirlitsstofnun velferðamála (GEV) hefur verið stofnað var til frumkvæðisathugunar að beiðni Félags- og húsnæðismálaráðuneytis (FRN), í kjölfar fjölmiðlaumfjöllunar um aðstæður á fósturheimilinu Bakkakoti og umræðu um skort á eftirliti með fósturheimilum.
Markmið athugunarinnar er að kanna hvort barnaverndarþjónustur landsins hafi uppfyllt eftirlitsskyldur sínar með fósturheimilum. Athugunin nær til allra barnaverndarþjónusta landsins.
Markmið athugunarinnar er að kanna hvort barnaverndarþjónustur landsins hafi uppfyllt eftirlitsskyldur sínar með fósturheimilum. Athugunin nær til allra barnaverndarþjónusta landsins.
Lagt fram til kynningar.
15.Skammtímadvöl á Vesturlandi
2501005
Staðan á uppbyggingu á skammtímadvöl á Vesturlandi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi hefur fyrir hönd sveitarfélaganna gert verksamning við Miðháls slf. og er markmiðið að taka saman og vinna gögn sem lögð verða fyrir sveitastjórnir til endanlegrar ákvörðunar.
Lagt fram til kynningar.
16.Föruneyti barna
2603034
Lagt er fram erindi um verkefnið Invest in Play - Tengjumst í leik, sem snýr að mikilvægi leiks, tengslamyndunar og þátttöku barna í uppbyggilegu og styðjandi umhverfi.
Hvalfjarðarsveit hefur tekið ákvörðun innleiða verkefnið Invest in play eða á íslensku „Tengjumst í leik“ . Markmið verkefnisins er að valdefla foreldra og forsjáraðila og styðja við farsæld barna með námskeiðum og fræðslu innan leik- og grunnskóla. Verkefnið er hluti af því að efla grunnþjónustu fjölskyldna í samræmi við ný farsældarlög og telst til forvarnarverkefna sem er í boði fyrir alla uppalendur.
Verkefnið felur í sér fræðslu og foreldranámskeið innan leik- og grunnskóla, sem styðja foreldra í að takast á við uppeldisáskoranir með jákvæðum og markvissum hætti og efla samstarf heimila og skóla.
Velferðar- og fræðsludeild í samvinnu við Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar munu hefja undirbúning á innleiðingarferli sem tekur um eitt ár.
Verkefnið felur í sér fræðslu og foreldranámskeið innan leik- og grunnskóla, sem styðja foreldra í að takast á við uppeldisáskoranir með jákvæðum og markvissum hætti og efla samstarf heimila og skóla.
Velferðar- og fræðsludeild í samvinnu við Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar munu hefja undirbúning á innleiðingarferli sem tekur um eitt ár.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Samþykkt 5:0
Marie Greve Rasmussen og Sólrún Jörgensdóttir boðuðu forföll.
Áheyrnarfulltrúar sátu undir lið nr. 7, 8, 13 og 16.
Leik- og grunnskólastjórar sátu undir lið nr. 7, 8, 11, 13 og 16.