Sveitarstjórn
Dagskrá
1.Sveitarstjórn - 438
2603003F
Fundargerðin framlögð.
2.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60
2602007F
Fundargerðin framlögð.
EÓG fór yfir helstu atriði fundarins.
EÓG fór yfir helstu atriði fundarins.
-
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja undirbúning að útboði vegna rotþróarhreinsunar. Unnið verði í samráði við Fjársýslu ríkisins.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að hefja undirbúning að útboði vegna rotþróarhreinsunar. Unnið verði í samráði við Fjársýslu ríkisins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Í samræmi við umræður á fundinum felur Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd, Umhverfis- og skipulagsdeild að endurnýja samninga við veiðimenn og eftir atvikum gera nýjan samning, sem gildir til ársloka 2028.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar um endurnýjun samninga við veiðimenn til ársloka 2028 og eftir atvikum gerð nýs samnings, samningar verði vísitölubundnir. Umhverfis- og skipulagsdeild er falin endanleg samningagerð og frágangur samninga."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að semja við Fornleifastofnun Íslands að hefja undirbúning að uppfærslu skráningargagna vegna fornminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands og með hliðsjón af verkefnatillögu Fornleifastofnunar sem staðfest hefur verið af Minjaverði Vesturlands f.h. Minjastofnun Íslands.
Nefndin samþykkir að óska eftir viðauka hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, þar er áætlað nú 600.000 kr. en heildarkostnaður við verkefnið er 3.039.000 kr.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að semja við Fornleifastofnun Íslands að hefja undirbúning að uppfærslu skráningargagna vegna fornminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands og með hliðsjón af verkefnatillögu Fornleifastofnunar sem staðfest hefur verið af Minjaverði Vesturlands f.h. Minjastofnunar Íslands.
Sveitarstjórn samþykkir vegna þess viðauka nr. 7 við fjáhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 2.439.000 kr. vegna vinnu við uppfærslu skráningargagna vegna forminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlengja samning sveitarfélagsins við Dreyra um fjármagn til reiðvegagerðar með tilteknum breytingum skv. umræðum á fundinum.
Samningurinn verði vegna tiltekinna verkefna en röð verkefna verði skv. ákvörðun Dreyra hverju sinni og skv. nánara samkomulagi við sveitarfélagið. Nefndin leggur til að gerðir verði samningar við verktaka í upphafi tímabils, enda liggi þá fyrir leiða- og efnisval, samþykki landeigenda, tímasett áætlun osfrv.
Málefni vísitölutengingar vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að framlengja samning sveitarfélagsins við Hestamannafélagið Dreyra um fjármögnun reiðvegagerðar. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að samningurinn verði vísitölutengdur. Umhverfis- og skipulagsdeild, í samvinnu við sveitarstjóra, er falið að vinna málið áfram með Hestamannafélaginu Dreyra. Að því loknu verði drög að samningi lögð fyrir sveitarstjórn."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
BSG vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að framlengja framkvæmdaleyfið til 11. desember 2026.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Elín Ósk Gunnarsdóttir vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að framlengja framkvæmdaleyfið til 11. desember 2026."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
EÓG vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Skógrækar- og Landbúnaðarland (SL) með áorðnum breytingum, skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að auglýsa tillögu að skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Skógræktar- og Landbúnaðarland (SL) með áorðnum breytingum, skv. 1. mgr. 31. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Læk Hafnarlandi og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu að nýju, skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Læk Hafnarlandi og leggur til að tillagan verði send Skipulagsstofnun til afgreiðslu að nýju, skv. 3. mgr. 32 gr. Skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag fyrir lóðina Læk Hafnarlandi og að gildistaka deiliskipulagsins verði send til staðfestingar að nýju í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir deiliskipulag fyrir lóðina Læk Hafnarlandi og að gildistaka deiliskipulagsins verði send til staðfestingar að nýju í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag fyrir svæðið með áorðnum breytingum og að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir deiliskipulag fyrir svæðið með áorðnum breytingum og að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.“
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Skipulagsstofnunar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að um sé að ræða óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Höfn II, enda víkur tillagan að mati nefndarinnar að óverulegu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis. Nefndin samþykkir að láta fara fram grenndarkynningu meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda. Þ.e. Hafnarskógar 85 L225236, Hafnarskógar 83 L223568, Hafnarskógar 77 L224565, Hafnarskógar 79 L227597, Hafnarskógar 71 L227596, Hafnarskógar 75 L221362, Hafnarskógar 73 L221361, Hafnarskógar 69 og Höfn II L190371.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og samþykkir að láta fara fram grenndarkynningu meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda. Þ.e. Hafnarskógar 85 L225236, Hafnarskógar 83 L223568, Hafnarskógar 77 L224565, Hafnarskógar 79 L227597, Hafnarskógar 71 L227596, Hafnarskógar 75 L221362, Hafnarskógar 73 L221361, Hafnarskógar 69 og Höfn II L190371."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar, sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar, sem framkvæmd var skv. 44. grein Skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum. -
Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 60 Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar. Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir bókun nefndarinnar og gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar, sem framkvæmd var skv. 44. grein Skipulagslaga nr. 123/2010."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
3.Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2025.
2603011
Seinni umræða.
Ársreikningur ásamt endurskoðunarskýrslu.
Ársreikningur 2025 lagður fram til síðari umræðu.
Rekstrartekjur Hvalfjarðarsveitar árið 2025 námu rúmum 1.675mkr. samkvæmt rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en þar af námu rekstrartekjur A hluta tæpum 1.687mkr.
Rekstrargjöld sveitarfélagsins á árinu 2025 voru 1.423,6mkr. fyrir A og B hluta en 1.416,1mkr. fyrir A hluta. Fjármagnsliðir voru jákvæðir og námu 220,4mkr. og aðrar tekjur og gjöld voru 4,8mkr. gjöld.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt ársreikningi A og B hluta var jákvæð um 467,1mkr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 5.243,7mkr. samkvæmt efnahagsreikningi. Veltufé frá rekstri var 31,90%, veltufjárhlutfall 9,03% og eiginfjárhlutfall 96%.
Samanburður á fjárhagslegum viðmiðum sveitarstjórnarlaga milli áranna 2024 og 2025 eru að skuldaviðmið sveitarfélagsins er áfram jákvætt, fer úr 114,06% í 84,38% árið 2025 og rekstrarjöfnuður síðustu þriggja ára er 1.349,7mkr.
Rekstrarniðurstaða málaflokka og deilda var almennt innan áætlunar ársins 2025 og ber það m.a. að þakka starfsfólki fyrir utanumhald og yfirsýn málaflokka og deilda í því skyni að virða fjárheimildir ársins.
Handbært fé í árslok 2025 var 1,7makr. og er það óneitanlega styrkur til fyrirhugaðrar framtíðarinnviðauppbyggingar skv. langtímaáætlun, s.s. lokafrágangs nýs íþróttahúss, byggingu nýs leikskólahúsnæðis, gatnagerðarframkvæmda, göngustígagerðar auk annarra framkvæmda.
Styrk staða sveitarfélagsins varðar áfram þá vegferð sem unnið hefur verið út frá undanfarin tæpan áratug, að framkvæma án lántöku.
Forstöðufólki stofnana og starfsfólki Hvalfjarðarsveitar eru færðar kærar þakkir fyrir þeirra aðkomu og vinnu við gerð ársreiknings.
Framtíð Hvalfjarðarsveitar er sannarlega björt og ekki útlit fyrir annað en að íbúafjölgun haldi áfram og að innviðir sveitarfélagsins styrkist og blómstri, öllum til heilla.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir ársreikning vegna ársins 2025 og staðfestir hann með undirritun sinni."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Til máls tók LBP.

4.Óbindandi viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa.
2603012
Mál frá 438. sveitarstjórnarfundi.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að í viðhorfskönnun meðal kjörgengra íbúa, sem fram fer samhliða sveitarstjórnarkosningum þann 16. maí nk., verði lagðar fyrir eftirfarandi spurningar:
Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög?
[ ] Hlynnt(ur).
[ ] Hvorki né/tek ekki afstöðu.
[ ] Andvíg(ur/t).
Ef hlynnt(ur), hvert horfir þú til?
[ ] Akraneskaupstaðar
[ ] Borgarbyggðar
[ ] Kjósarhrepps
[ ] Annað: ________________ "

5.Barnvæn sveitarfélög-Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
2002048
Aðgerðaráætlun Hvalfjarðarsveitar vegna innleiðingar barnasáttmálans, barnvænt sveitarfélag, samþykkt af stýrihópi verkefnisins til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir aðgerðaráætlun Hvalfjarðarsveitar vegna innleiðingar barnasáttmálans, barnvænt sveitarfélag og vísar aðgerðaáætluninni inn til kynningar í nefndir sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir aðgerðaráætlun Hvalfjarðarsveitar vegna innleiðingar barnasáttmálans, barnvænt sveitarfélag og vísar aðgerðaáætluninni inn til kynningar í nefndir sveitarfélagsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
Málið var áður á dagskrá 434. og 437. sveitarstjórnarfunda.
6.Bókasafnsþjónusta - samstarf sveitarfélaganna.
2502021
Drög að samstarfssamningi milli sveitarfélaganna.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi við Akraneskaupstað um sameiginlegan rekstur Bókasafns Akraness á grundvelli bókasafnalaga nr. 150/2012. Samningurinn tryggir íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgang að allri þeirri þjónustu sem Bókasafn Akraness býður upp á. Þjónustusvæði safnsins verði þar með Akranes og Hvalfjarðarsveit.
Með samningi er Hvalfjarðasveit að uppfylla lögbundnar skyldur sínar skv. bókasafnslögum nr. 150/2012, auk þess sem íbúum Hvalfjarðarsveitar stendur til boða fjölbreytt þjónusta sem bókasafnið býður upp á, til jafns við íbúa Akraneskaupsstaðar. Þar á meðal geta börn frá Hvalfjarðarsveit sem stunda frístundastarf á Akranesi nýtt sér aðstöðuna á bókasafninu á meðan þau bíða eftir að frístundastarf hefjist. Þá býður bókasafnið upp á margvísleg og spennandi þjónustutækifæri, svo sem samstarf leik- og grunnskóla við bókasafnið, vinnustofur og fleira. Inni í samningi kemur fram að leitast verði við að koma á samstarfi og sameiginlegum verkefnum með hliðsjón af tilkomu nýrrar samfélagsmiðstöðvar í Heiðarborg. Einnig verður settur upp skilakassi í Heiðarborg þar sem hægt verður að skila bókum.
Samningsaðilar hafa gagnkvæman uppsagnarfrest, a.m.k. 6 mánuðir fyrir upphaf nýs starfsárs. Skipting kostnaðar milli Akraneskaupstaðar og Hvalfjarðarsveitar er í hlutfallinu 90/10. Hvalfjarðarsveit greiðir 10 prósent af heildarrekstrarkostnaði bókasafnsins auk 5 prósenta álags vegna umsýslukostnaðar, þ.e. að 5 prósent umsýslukostnaður er settur á heildarrekstrarkostnað bókasafnsins og greiðir Hvalfjarðarsveit 10 prósent hlutdeild í þeim heildarkostnaði.
Sveitarstjórn samþykkir vegna þessa viðauka nr. 8 við fjáhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð 10.581.982 kr. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að skrifa undir framlagðan samning.
Sveitarstjórn hvetur íbúa til að kynna sér og nýta sér fjölbreytta þjónustu bókasafnsins."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 5 atkvæðum, EÓG sat hjá, HH á móti.
Helga Harðardóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Nú, við umræðu um fyrirhugaðan samstarfssamning um bókasafnsþjónustu tel ég rétt að staldra við þá grundvallarspurningu um hlutverk og ábyrgð sveitarfélagsins á sviði menningar og félagslífs, því hér er ekki aðeins um tiltekna þjónustu að ræða heldur einnig stefnumótandi ákvörðun um hvernig sveitarfélagið vill rækta og byggja upp menningar- og félagslíf sitt til framtíðar.
Mikilvægt er að horfa til þess að bókasöfn eru í eðli sínu meira en staðir til að lána og skila bókum. Þau eru vettvangur fyrir fræðslu, samveru og menningarstarf og gegna mikilvægu hlutverki í sjálfsmynd og samfélagsgerð hvers sveitarfélags.
Um árabil hef ég litið svo á að uppbygging Heiðarborgar sem samfélagsmiðstöðvar sveitarfélagsins geti skapað vettvang fyrir slíka þjónustu, þar sem bókasafns- og menningarstarf þróast í nánum tengslum við íbúana. Sú sýn felur í sér raunhæft tækifæri til að byggja upp aðgengilega þjónustu innan sveitarfélagsins.
Að mínu mati hefur ekki verið horft með nægilega raunhæfum hætti til þeirra möguleika sem felast í uppbyggingu bókasafnsþjónustu innan sveitarfélagsins. Með því að ganga til samninga við Akraneskaupstað er hætta á að tækifæri til að móta og byggja upp eigin innviði, nýtist ekki að fullu. Það felst verulegt gildi í því að hafa stjórn á ráðstöfun fjármuna til menningarstarfs í nánd við íbúana, þar sem ákvarðanir eru teknar á forsendum samfélagsins og í þágu þess til lengri tíma. Sú fjárhæð sem hér um ræðir, um 10,5 milljónir króna árlega, getur með markvissum hætti styrkt safnkost og starfsemi skólasafns Heiðarskóla og stutt við fjölbreytt menningar- og fræðslustarf í heimabyggð.
Í umræðum hefur komið fram að veigamikill þáttur fyrir samningnum sé að grunnskólabörn Hvalfjarðarsveitar sem sækja íþrótta- og tómstundastarf á Akranesi hafi ekki aðstöðu til að dvelja á meðan þau bíða eftir æfingum og að því eigi að mæta með þessum samningi. Ég tel að þeirri þörf sé hægt að mæta með markvissari og hagkvæmari hætti í samráði við börnin og foreldra þeirra.
Með hliðsjón af framangreindu mun ég því greiða atkvæði gegn tillögu oddvita um að gera samstarfssamning um bókasafnsþjónustu."
Til máls tók HH.

7.Endurbætur við Leirárkirkju.
2512010
Erindi frá Sóknarnefnd Leirárkirkju, áður til umfjöllunar á 433. sveitarstjórnarfundi.
Á fundi sveitarstjórnar nr. 433 var tekið jákvætt í erindið en samþykkt var að fresta afgreiðslu þess þar til staðfesting um fjármögnun endurbóta á Leirárkirkju myndi liggja fyrir.
Varaoddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir beiðni Sóknarnefndar Leirárkirkju um styrkveitingu til endurbóta við Leirárkirkju. Styrkfjárhæðin verði kr. 3.000.000.
Sveitarstjórn samþykkir vegna þess viðauka nr. 9 við fjáhagsáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 3.000.000 vegna endurbóta við Leirárkirkju. Breytingin kemur til lækkunar á handbæru fé."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum.
AÝA vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.

8.Munum leiðina - vitundarvakning Alzheimersamtakanna.
2603027
Erindi frá Katrínu Rós Sigvaldadóttur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur jákvætt í erindið og vísar því til Mannvirkja- og framkvæmdanefndar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur jákvætt í erindið og vísar því til Mannvirkja- og framkvæmdanefndar."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
9.Bætt umferðaröryggi í Hvalfjarðarsveit.
2603028
Erindi frá Helgu D. Lárusdóttur.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
“Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar þakkar fyrir erindið og tekur heilshugar undir áhyggjur bréfritara enda hefur sveitarstjórn, bæði á núverandi og síðasta kjörtímabili, ítrekað átt fundi vegna málefnisins með fulltrúum Vegagerðarinnar sem er veghaldari allra umræddra vega og gatnamóta.
Fyrsti vegkaflinn sem bréfritari vísar til er þjóðvegur 1, Vegagerðin ber ábyrgð á þeim vegi en ákvarðanir um fjármögnun og stefnu eru teknar á vettvangi ríkisins. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar sendi nýverið inn umsögn vegna Samgönguáætlunar 2026-2040 þar sem sveitarstjórn lýsti meðal annars yfir vonbrigðum með að fjármagn til framkvæmda við aðskilnað akstursstefnu á þjóðvegi 1 í gegnum Hvalfjarðarsveit sé ekki áætlað fyrr en á síðasta tímabili, þ.e. á árunum 2036-2040.
Umferð á þjóðvegi 1 í gegnum Hvalfjarðarsveit hefur aukist verulega á undanförnum árum. Meðalumferð við Melahverfi er nú komin í um 6.100 bíla á dag og um Hvalfjarðargöng fara að jafnaði 8.800 bílar á dag á ársgrundvelli. Yfir sumartímann eru tölurnar enn hærri eða um 11.000 bílar í gegnum göngin og 8.000 bílar við Melahverfi á dag.
Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar hafa, eins og áður er nefnt, átt ótal fundi með Vegagerðinni, þingmönnum og öðrum hagsmunaaðilum þar sem lýst hefur verið yfir þungum áhyggjum af umferðaröryggi á öllum þeim svæðum sem bréfritari vísar til sem og áréttað nauðsyn úrbóta hið allra fyrsta. Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar munu nýta hvert tækifæri til áframhaldandi samtals og halda ofangreindri vinnu ótrauð áfram og þrýsta á úrbætur þar til brugðist hefur verið við og bætt úr enda um afar brýnt málefni að ræða, ekki einungis fyrir umferðaröryggi íbúa Hvalfjarðarsveitar heldur almannaheill."

10.Frumvörp, reglur og þingsályktunartillögur til umsagnar 2026.
2601036
Frumvarp til laga um innviðafélag - frá fjármála- og efnahagsráðherra.
Í greinargerð með frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um stofnun innviðafélags, 6.2. um rekstrarforsendur innviðafélags, kemur fram að skoðað hafi verið að: “...leggja félaginu til mannvirki sem þegar hefur verið byggt og taka upp innheimtu veggjalda og var greiningin gerð miðað við að það væru Hvalfjarðargöng sem félaginu yrðu lögð til. Áætlunin gerði ráð fyrir hóflegum veggjöldum miðað við forsendur um metinn greiðsluvilja samkvæmt rannsóknum. Innheimta veggjalda í Hvalfirði myndi hefjast 2028 á sama tíma og tvöföldun ganganna yrði sett í undirbúning og framkvæmd hafin 2030."
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar leggst alfarið gegn endurupptöku veggjaldtöku í Hvalfjarðargöngum. Um er að ræða samgöngumannvirki sem þegar hefur verið greitt fyrir að fullu með innheimtu veggjalda og telur sveitarstjórn slíkar áætlanir því hvorki byggjast á sanngirni né réttlætanlegum forsendum.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að senda fastanefnd ofangreinda umsögn sveitarstjórnar um þingmálið.

11.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Faxaflóahafnir sf.
2602017
Fundargerð 265. stjórnarfundar.
Fundargerðin framlögð.
12.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili.
2601035
Fundargerð 168. stjórnarfundar ásamt fylgigögnum.
Fundargerðin ásamt fylgigögnum framlögð.
13.Fundargerðir 2026 ásamt fylgigögnum - Samband íslenskra sveitarfélaga.
2602001
Fundargerðir 994. og 995. stjórnarfunda.
Fundargerðirnar framlagðar.
Fundi slitið - kl. 18:04.
Oddviti óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi máli á dagskrá:
Mál nr. 2603011 - Ársreikningur Hvalfjarðarsveitar 2025 - seinni umræða. Málið verður nr. 3 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0