Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd
Dagskrá
1.Rotþróarhreinsun - Útboð 2026
2602057
Núgildandi samningur um rotþróarhreinsun var boðinn út til 5 ára eða fyrir tímabilið 2020-2024 með ákvæði um framlengingu að samningstíma loknum sem var til 31. desember 2024. Samningur var svo framlengdur í samræmi við ákvæði þar um og gildir hann nú til loka árs 2026.
Hreinsun rotþróa er framkvæmd þriðja hvert ár fyrir heimili, frístundahús og stofnanir í sveitarfélaginu. Við síðasta útboð var um að ræða 680 stk. rotþrær.
Málið var kynnt á síðasta fundi í Mannvirkja- og framkvæmdanefnd þann 3.3.2026.

2.Hreinsunarátak 2026
2603019
Tillaga lögð fram að dagsetningu hreinsunarátaksins, hugsanlegar staðsetningar gámanna með tilliti til aðgengis og gerð úrgangsflokka.
Málmahreinsun á bújörðum, tillaga lögð fram að dagsetningum og samstarfi.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir árlega vorhreinsun á tímabilinu 15. - 25. maí 2026. Gámar fyrir timbur, járn/dekk, gróðurúrgang og óflokkaðan úrgang verði staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og í nágrenni Krosslands. Ítreka þarf umgengni og úrgangsflokka.
Á tíma hreinsunar geta íbúar pantað spilliefna og raftækjabíl.
Frá 1.júní -31.ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum til afnota í tvo sólarhringa.
Tímabil hreinsunar í frístundabyggðum er frá 1. júní til 31. ágúst og er hægt að fá gáma undir timbur, járn og gróðurúrgang í 11 daga samfellt innan tímabils sbr. verklagsreglur um hreinsunarátak í Hvalfjarðarsveit.
Nefndin leggur einnig til að auglýst verði málmahreinsun á bújörðum í samstarfi við málmfyrirtæki og flutningsaðila.

3.Úrgangsmál í Hvalfjarðarsveit.
2210038
Staða móttökustöðvar og grenndarstöðva í sveitarfélaginu.
Staða málsins kynnt og rædd. Umhverfis- og skipulagsdeild falið að vinna áfram að málinu.
Samþykkt að vinna kostnaðargreiningu útfrá þeim valkostum sem þegar liggja fyrir og með hliðsjón af mismunandi þjónustustigum sbr. umræður á fundinum.

4.Samningar um refa- og minkaveiðar.
2401056
Rætt um fyrirkomulag refa- og minnkaveiða árið 2026 og endurnýjun samninga við ráðna veiðimenn.
Hvalfjarðarsveit greiðir eingöngu fyrir veiði ráðinna veiðimanna sveitarfélagsins.
Fyrirkomulag hefur verið með eftirfarandi hætti hjá Hvalfjarðarsveit:
Fyrrum Hvalfjarðarstrandahreppur.
Ingvar Ragnarsson, minkaveiði
Guðmundur Gíslason, refaveiði
Fyrrum Innri-Akraneshreppur.
Ingvar Ragnarsson, refa- og minkaveiði
Fyrrum Leirár- og Melahreppur.
Stefán G. Örlygsson, refaveiði
Kári Haraldsson, minkaveiði
Fyrrum Skilmannahreppur.
Ingvar Ragnarsson, refa- og minkaveiði
Fyrir liggur tillaga um óbreytt fyrirkomulag vegna veiðimanna og svæða en með þeirri breytingu að í stað Guðmundar Gíslasonar, sem lést á sl. ári, muni Guðmundur Þór Guðmundsson sinna refaveiði á svæði Hvalfjarðarstrandar.

Í samræmi við umræður á fundinum felur Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd, Umhverfis- og skipulagsdeild að endurnýja samninga við veiðimenn og eftir atvikum gera nýjan samning, sem gildir til ársloka 2028.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.

5.Landamerki Teigs og Krosslands eystra.
2211039
Erindi dags. 03.03.2026 frá lögmanni landeigenda vegna ágreinings um landamerki Teigs og Krosslands eystra.
Í erindinu kemur fram að lögbundinni sáttameðferð landeigenda hjá sýslumanninum á Vesturlandi, hafi lokið án árangurs.
Er með erindinu farið fram á að sveitarfélagið heimili ekki skipulagsbreytingar innan hins svokallaða þrætusvæðis, að viðlagðri ábyrgð, þar til leyst hefur verið úr ágreiningi landeigenda.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd er meðvituð um þann ágreining um landamerki sem er á svæðinu og vill árétta það sem fram hefur komið í fyrri samskiptum vegna málsins að stofnskjal vegna svæðisins er á ábyrgð viðkomandi landeigenda.
Vegna fyrirliggjandi ágreinings milli landeigenda telur nefndin sér ekki fært um að samþykkja deiliskipulag eða skipulagsbreytingar á þessu tiltekna svæði nema að höfðu lögformlegu samráði við landeigendur Teigs og mun hafa bréf lögmanns landeiganda Teigs til hliðsjónar verði tillögur að skipulagsbreytingum á þessu tiltekna svæði lagðar fyrir nefndina til formlegrar umfjöllunar í USNL-nefnd.

6.Nýjir staðlar Minjastofnunar Íslands fyrir fornleifaskráningu frá árinu 2013
2512014
Málið var áður á dagskrá 57. fundar USNL-nefndar þann 07.01.2026.
Bókaði nefndin að hún teldi æskilegt að hefja undirbúning að uppfærslu skráningargagna vegna fornminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands og með hliðsjón af verkefnatillögu Fornleifastofnunar. Nefndin samþykkti að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að afla samþykkis Minjastofnunar fyrir tilhögun verksins, leggja mat á kostnað vegna verkefnisins ofl., og að fjallað verði um verkefnið að nýju í USNL-nefnd þegar frekari upplýsingar liggja fyrir.
Fyrir liggur staðfesting Minjavarðar Vesturlands f.h. Minjastofnunar Íslands á verkefnatillögu Fornleifastofnunar og kostnaðarmat á verkefninu.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að semja við Fornleifastofnun Íslands að hefja undirbúning að uppfærslu skráningargagna vegna fornminja í Hvalfjarðarsveit í samræmi við nýja staðla Minjastofnunar Íslands og með hliðsjón af verkefnatillögu Fornleifastofnunar sem staðfest hefur verið af Minjaverði Vesturlands f.h. Minjastofnun Íslands.
Nefndin samþykkir að óska eftir viðauka hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, þar er áætlað nú 600.000 kr. en heildarkostnaður við verkefnið er 3.039.000 kr.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Nefndin samþykkir að óska eftir viðauka hjá sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar, þar er áætlað nú 600.000 kr. en heildarkostnaður við verkefnið er 3.039.000 kr.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
7.Reiðvegasamningur.
2511006
Erindi frá Hestamannafélaginu Dreyra.
Stjórn Hestamannafélagsins Dreyra óskar eftir að reiðleiðir í gildandi samningi milli Dreyra og Hvalfjarðarsveitar verði uppfærðar með hliðsjón af samstarfi Dreyra við öryggisnefnd Vegagerðarinnar og reiðveganefnd Landsambands hestamannafélaga.
Áfram verði unnið að forgangsröðun reiðleiða í sveitarfélaginu í samstarfi við sveitarfélagið.
Núverandi samningur gildir til og með árinu 2027 og óskar stjórn Dreyra eftir því að samningurinn verði framlengdur til og með árinu 2030, auk þess er óskað eftir því að uppfærði samningurinn verði vísitölutengdur.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd leggur til við sveitarstjórn að framlengja samning sveitarfélagsins við Dreyra um fjármagn til reiðvegagerðar með tilteknum breytingum skv. umræðum á fundinum.
Samningurinn verði vegna tiltekinna verkefna en röð verkefna verði skv. ákvörðun Dreyra hverju sinni og skv. nánara samkomulagi við sveitarfélagið. Nefndin leggur til að gerðir verði samningar við verktaka í upphafi tímabils, enda liggi þá fyrir leiða- og efnisval, samþykki landeigenda, tímasett áætlun osfrv.
Málefni vísitölutengingar vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Samningurinn verði vegna tiltekinna verkefna en röð verkefna verði skv. ákvörðun Dreyra hverju sinni og skv. nánara samkomulagi við sveitarfélagið. Nefndin leggur til að gerðir verði samningar við verktaka í upphafi tímabils, enda liggi þá fyrir leiða- og efnisval, samþykki landeigenda, tímasett áætlun osfrv.
Málefni vísitölutengingar vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
8.Belgsholt - L 133734 - framkvæmdaleyfi vegna sjóvarnar.
2412001
Erindi frá Vegagerðinni með ósk um fremlengingu á gildistíma framkvæmdaleyfis.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á 411. fundi sínum þann 11.12.2024 að veita framkvæmdaleyfi til Vegagerðarinnar vegna fyrirhugaðra sjóvarna í landi Belgsholts, landeignarnúmer L 133734.
Gildistími framkvæmdaleyfisins var 12 mánuðir frá samþykki sveitarstjórnar og gilti framkvæmdaleyfið því til 11. desember 2025.
Óskað er eftir framlengingu á gildistíma framkvæmdaleyfisins.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að framlengja framkvæmdaleyfið til 11. desember 2026.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Elín Ósk Gunnarsdóttir vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins.

9.Fögruvellir 2 A og B - bílastæði.
2411002
Erindi dags. 17.02.2026 frá Agli Arnari Rossen f.h. húsfélagsins að Fögruvöllum 2, L202264.
Óskað er eftir viðbótar bílastæðum á sameiginlegri lóð Fögruvalla 2 vegna vöntunar á bílastæðum, nánar tiltekið óskast leyfi fyrir tveimur auka bílastæðum fyrir framan tæknirými, með fyrirvara um samþykki meirihluta íbúðareigenda.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd tekur jákvætt í að heimiluð verði fleiri bílastæði á lóð Fögruvalla 2, að undangenginni skoðun á hvar þeim verði best fyrir komið. Í tengslum við þessar breytingar þarf að liggja fyrir samþykki húsfélagsins/íbúðareigenda í samræmi við lög um fjöleignahús, hanna fyrirhugaðar breytingar s.s. útfærslu á tengingu við gangstétt/götu, afvötnun vegna regnvatns ofl., og eftir atvikum grenndarkynna framkvæmdaleyfi vegna breytinganna eða breyta deiliskipulagi svæðisins, allt eftir umfangi og eðli þeirra breytinga sem húsfélagið ákveður að kosta og ráðast í.
10.Endurskoðun aðalskipulags - Skilmálabreytingar - Skógrækt
2206043
Lögð er fram uppfærð tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 þar sem athugasemdir/ábendingar sem bárust á kynningartíma vinnslutillögu hafa eftir atvikum verið hafðar til hliðsjónar. Einnig hefur verið skerpt á skilmálum og breytingar gerðar á orðalagi í samráði við Land og Skóga.
Helstu breytingar frá fyrri tillögu eru að með umsókn um framkvæmdaleyfi vegna skógræktar á 3-10 ha skal fylgja greinargerð um skógræktaráform sem tekur til markmið skógræktar, stærðar og afmörkun svæðis, ásamt nauðsynlegum framkvæmdum. Greinargerð skal byggja á gildandi útgáfu „Gæðaviðmiða um val á landi til skógræktar“ sem gefin er út af Land og Skógum. Skógrækt á 10 ha svæði eða stærra er háð breytingu aðalskipulags og skal fylgja ítarlegri greinargerð eða drög að ræktunaráætlun þar sem gerð er grein fyrir þáttum eins og markmið, mati á verndargildum svæðis, landgæðum, fornleifum, grunnvatn o.s.frv..

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að skilmálabreytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032, fyrir Skógrækar- og Landbúnaðarland (SL) með áorðnum breytingum, skv. 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
11.Lækur Hafnarlandi L210327 - Aðalskipulagsbreyting
2506025
Sveitarstjórn samþykkti 25.09.2025 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir nýtt verslunar- og þjónustusvæði í landi Lækjar Hafnarlands L210327. Samhliða var auglýst deiliskipulag fyrir svæðið. Kynningartími auglýsingar var 12.11. - 24.12.2025 og bárust 3 umsagnir. Um er að ræða tæplega 15 ha svæði sem nú er skilgreint sem frístundabyggð en verður breytt í verslunar- og þjónustusvæði, með heimild til fastrar búsetu og ferðaþjónustu innan svæðis.Gert er ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum ásamt allt að 13 gistihúsum til útleigu og þremur þjónustubyggingum fyrir ferðaþjónustu og allt að 60 gestum í gistingu.
Samþykkt var á fundi USNL-nefndar 7.1.2026 að senda breytinguna til staðfestingar hjá skipulagsstofnun.
Lagðar fram athugasemdir Skipulagsstofnunar sbr. bréf dags. 16.02.2026 og leiðrétt greinargerð með þeim lagfæringum sem óskað var eftir.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 fyrir Læk Hafnarlandi og leggur til að tillagan verði send Skipulagstofnun til afgreiðslu að nýju, skv. 3. mgr. 32 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
12.Lækur Hafnarlandi L210327 - Deiliskipulag
2510024
Sveitarstjórn samþykkti 22.10.2025 að auglýsa tillögu nýju deiliskipualagi landi Lækjar Hafnarlands L210327. Samhliða var auglýst aðalskipulagsbreyting fyrir svæðið með breytingu frá frístundasvæði í verslunar- og þjónustusvæði. Kynningartími auglýsingar var 12.11. - 24.12.2025 og bárust 8 umsagnir. Um er að ræða tæplega 15 ha svæði sem nú er skilgreint sem frístundabyggð en verður breytt í verslunar- og þjónustusvæði, með heimild til fastrar búsetu og ferðaþjónustu innan svæðis. Gert er ráð fyrir tveimur íbúðarhúsum ásamt allt að 13 gistihúsum til útleigu og þremur þjónustubyggingum fyrir ferðaþjónustu og allt að 60 gestum í gistingu.
Samþykkt var á fundi USNL-nefndar 7.1.2026 að senda breytinguna til staðfestingar hjá skipulagsstofnun.
Lagðar eru fram athugasemdir Skipulagsstofnunar sbr. bréf dags. 17.02.2026, leiðrétt greinargerð og uppdráttur með þeim lagfæringum sem óskað var eftir.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag fyrir lóðina Læk Hafnarlandi og að gildistaka deiliskipulagsins verði send til staðfestingar að nýju í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
13.Kross - Deiliskipulagsbreyting - Leiksvæði
2603024
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Kross, 1. áfanga.
Í gildi er deiliskipulag fyrir Kross, samþykkt 08.12.2020. Skipulagið tekur til um 7,4 ha svæðis þar sem gert er ráð fyrir blandaðri íbúðarbyggð. Breytingin felst í skiptum á landspildum milli eiganda Krosslands Eystra (L205470) og Kross (L198194). Um 1600 m2 skiki af landi Kross sameinast
Krosslandi Eystra og er tekinn út af deiliskipulagi. Þess í stað fara um 1600 m2 af landi Krosslands eystra til Hvalfjarðarsveitar og verður hluti af landi Kross og skilgreint sem grænt svæði undir leiksvæði.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulag fyrir svæðið með áorðnum breytingum og að auglýsa tillöguna skv. 1. mgr. 43. gr. Skipulagslaga 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
14.Katanesvegur 30 og 32 - deiliskipulagsbreyting.
2506026
Erindi frá Faxaflóahöfnum sbr. mál nr. 947/2025 í Skipulagsgátt.
Athugasemdir Skipulagsstofnunar dags. 05.11.2025 bárust í Skipulagsgátt við athugun stofnunarinnar eftir auglýsingatíma.
Lögð fram viðbrögð Faxaflóahafna vegna athugasemda Skipulagsstofnunar (nú HMS) frá 05.11.2025.
Skipulagshöfundar hjá Teikna, ásamt Skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, hafa fundað með Skipulagsstofnun vegna bréfs stofnunarinnar dags. 5. nóvember sl., sem finna má í Skipulagsgátt, þar sem Skipulagsstofnun gerði mjög vel grein fyrir þeim athugasemdum sem fram koma í bréfinu og útskýrði fyrir skipulagshöfundum það sem var óljóst að þeirra mati, en boðað var til fundarins að beiðni skipulagshöfunda.
Á 59. fundi Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 18.02.2026 fjallaði nefndin um viðbrögð skipulagshöfunda hjá Teikna f.h. Faxaflóahafna og í bókun nefndarinnar kom fram að nefndin teldi að ekki hafi verið unnið fullnægjandi úr þeim athugasemdum sem Skipulagsstofnun gerði við deiliskipulagið og fól Umhverfis- og skipulagsdeild að afla frekari gagna frá landeiganda fyrir næsta fund nefndarinnar. Afgreiðslu málsins var frestað.
Meðfylgjandi er uppfærð tillaga að breytingu á deiliskipulagi í tengslum við Katanesveg 30 og 32 á Grundartanga.
Faxaflóahafnir óska eftir því að málið verði tekið til afgreiðslu.

Umhverfis-, skipulags, náttúruverndar-, og landbúnaðarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti deiliskipulagstillöguna með áorðnum breytingum og samþykkir að auglýsa staðfestingu deiliskipulagsins í B-deild Stjórnartíðinda að undangenginni aðkomu Skipulagsstofnunar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

15.Hafnarskógar 81 - Umsókn um óverulega deiliskipulagsbreytingu
2602006
Á 59. fundi Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar þann 18.2.2026, var fjallað um óverulega deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Hafnar II fyrir Hafnarskóga 81.
Breyting deiliskipulagsins felur í sér breytingu á skipulagsuppdrætti og byggingarskilmálum. Breytingin er í samræmi við Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Í gildi er deiliskipulag í landi Hafnar II nr. 877/2008 í B-deild stjórnartíðinda, en síðan þá hafa verið gerðar tvær breytingar árin 2014 og 2011. Umsóknin tekur til færslu á lóð til suð vesturs, færslu og stækkun á byggingarreit, breyttrar mænisstefnu, breytts þakhalla í 0-45°. Lagður er fram uppdráttur með lýsingu á breytingum.
Umhverfis- og skipulagsdeild var falið að afla ferkari upplýsinga og afgreiðslu málsins frestað, nú eru lögð eru fram uppfærð gögn.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að um sé að ræða óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Höfn II, enda víkur tillagan að mati nefndarinnar að óverulegu leyti frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis. Nefndin samþykkir að láta fara fram grenndarkynningu meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda. Þ.e. Hafnarskógar 85 L225236, Hafnarskógar 83 L223568, Hafnarskógar 77 L224565, Hafnarskógar 79 L227597, Hafnarskógar 71 L227596, Hafnarskógar 75 L221362, Hafnarskógar 73 L221361, Hafnarskógar 69 og Höfn II L190371.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
16.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Kúhalli 3 - Flokkur 1
2510036
Grenndarkynningu lýkur 10.03.2026.
Sótt var um byggingarleyfi fyrir 37,4 m2 frístundahúsi á lóðinni Kúhalla 3 L133535, í landi Þórisstaða 2. Ekki er deiliskipulag fyrir hendi. Lóðin Kúhalli 3 er skráð frístundalóð og 9.640 m2 að stærð. Landið er frístundabyggð skv. aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Um er að ræða bjálkahús á einni hæð, burðarvirki þaks er úr timbri, undirstöður eru steyptir sökkulveggir. Á lóðinni eru fyrir garðhús 4 m2 að stærð og 10 m2 geymsla. Aðkoma er frá götunni Kúhalli.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti að grenndarkynna byggingarleyfið skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010, meðal aðliggjandi lóðarhafa og landeiganda.
Tillagan var grenndarkynnt skv. 2. mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og var kynningartími frá 10. febrúar til og með 10. mars 2026.
Kynningartíma í Skipulagsgátt lauk án athugasemda en alls bárust 3 umsagnir.

Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar, sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
17.Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hjallholt 2 - Flokkur 1
2510025
Málið var tekið fyrir og bókun frá febrúarfundi nefndarinnar:
Byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Hjallholt 2 L133559, í landi Þórisstaða 2, var grenndarkynnt án athugasemda og samþykkt byggingarheimild í beinu framhaldi á afgreiðslufundi Byggingarfulltrúa þann 16.01.2026. Staðsetning hússins þarf að færast vegna landfræðilegra annmarka á lóðinni. Lóðarhafar óska eftir að ný staðsetning verði grenndarkynnt og byggingarleyfi veitt skv. nýjum uppdráttum.
Grenndarkynnt var í Skipulagsgátt frá 2. mars, en allir umsagnaraðilar hafa svarað og gera ekki athugasemdir.
Skv. 3. mgr. 44. gr. Skipulagslaga 123/2010 er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta, sbr. 1. mgr., hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd.

Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti byggingarleyfi á grundvelli niðurstöðu grenndarkynningar sem framkvæmd var skv. 44. grein skipulagslaga nr. 123/2010.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.
18.Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps.
2512009
Erindi dags. 10. mars 2026 þar sem Kjósarhreppur biður um umsögn vegna máls nr. 917/2024 í Skipulagsgátt, "Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps 2024-2036".
Kynningartími er frá 10.3.2026 til 21.4.2026.
Sveitarstjórn Kjósarhrepps samþykkti á fundi sínum 11. júlí skipulagslýsingu fyrir endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps 2024-2036.
Síðan gildandi aðalskipulag Kjósarhrepps 2017-2029 var unnið hafa ýmsar forsendur breyst er varða landnotkun, innviði og þróun búsetu og atvinnulífs, og hafa ný tækifæri og nýjar áskoranir er varða þessa þætti litið dagsins ljós.
Skv. tillögunni hefur Hvalfjörður verið settur undir hverfisvernd merkt HV6. Í vinnslutillögu var hann skráður sem önnur náttúruvernd ÖN5 enda er hann tilnefndur á B-hluta náttúruminjaskrár.

Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd fór yfir fyrirliggjandi tillögu sveitarstjórnar Kjósarhrepps og samþykkir að fela Umhverfis- og skipulagsdeild að gera athugasemdir við tillögu að Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps 2024-2036 í samræmi við umræður á fundinum.
Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar að lokinni gerð umsagnar.

19.Styrkvegasjóður Vegagerðarinnar.
2502017
Erindi dags. 10. mars 2026 frá Vegagerðinni.
Umsóknir í styrkvegasjóð Vegagerðarinnar rann út 9. mars sl. en nú hefur umsóknarfrestur verið framlengdur til 23. mars næstkomandi sótt er um á mínum síðum Vegagerðarinnar.
Heimilt er að veita styrki til eftirfarandi samgönguleiða skv. reglum nr. 1155/2011:
1) vega yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir;
2) vega að bryggjum;
3) vega að skíðasvæðum;
4) vega að skipbrotsmannaskýlum;
5) vega að fjallskilaréttum;
6) vega að leitarmannaskálum;
7) vega að fjallaskálum;
8) vega innan uppgræðslu- og skógræktarsvæða;
9) vega að ferðamannastöðum;
10) vega að flugvöllum og lendingarstöðum sem ekki eru áætlunarflugvellir, en taldir eru upp í samgönguáætlun.

Umhverfis-, skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur Umhverfis- og skipulagsdeild að senda inn umsókn í styrkvegasjóð Vegagerðarinnar fyrir áframhaldandi lagfæringum í Álfholtsskógi og aðkomuvegum að fjárréttum í sveitarfélaginu.
20.Vindorkugarðurinn Sólheimar, Dalabyggð - Umsagnarbeiðni.
2407028
Mál til kynningar.
Vindorkugarðurinn Sólheimar, mál í Skipulagsgátt nr. 852/2024. Álit Skipulagsstofnunar ásamt fylgigögnum.
Álit Skipulagsstofnunar um umhverfismatsskýrslu vegna Vindorkugarðsins Sólheima, liggur nú fyrir:
Niðurstöðu Skipulagsstofnunar, umsagnir og viðbrögð framkvæmdaraðila við þeim má finna í Skipulagsgátt.

Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 18:00.