Fara í efni

Sveitarstjórn

384. fundur 11. október 2023 kl. 15:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti
  • Helga Harðardóttir varaoddviti
  • Elín Ósk Gunnarsdóttir vararitari
  • Birkir Snær Guðlaugsson aðalmaður
  • Inga María Sigurðardóttir aðalmaður
  • Ómar Örn Kristófersson aðalmaður
  • Ása Hólmarsdóttir 1. varamaður
Starfsmenn
  • Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Andrea Ýr Arnarsdóttir, oddviti, bauð fundarmenn velkomna.

Oddviti óskar eftir, með vísan til c.liðar 16. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Hvalfjarðarsveitar, að bæta með afbrigðum eftirfarandi málum á dagskrá:

Mál nr. 2309012F - Fundargerð Fjölskyldu- og frístundanefndar - 49. Málið verður nr. 5 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2309007F - Fundargerð Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar - 25 ásamt sjö afgreiðslumálum nr. 2102006, 2101108, 2309031, 2309023, 2301002, 2303028 og 2309008. Málin verða nr. 6, 6.1, 6.2, 6.3, 6.4, 6.6, 6.7 og 6.8 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Mál nr. 2310030 - Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar. Málið verður nr. 7 á dagskránni verði það samþykkt.
Samþykkt 7:0

Helgi Pétur Ottesen boðaði forföll.

1.Sveitarstjórn - 383

2309006F

Fundargerðin framlögð.

2.Öldungaráð - 2

2309010F

Fundargerðin framlögð.
AÝA fór yfir helstu atriði fundarins.

3.Ungmennaráð Hvalfjarðarsveitar - 13

2309009F

Fundargerðin framlögð.

4.Mannvirkja- og framkvæmdanefnd - 64

2309011F

Fundargerðin framlögð.
HH fór yfir helstu atriði fundarins.

5.Fjölskyldu- og frístundanefnd - 49

2309012F

Fundargerðin framlögð.
IMS fór yfir helstu atriði fundarins.

6.Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25

2309007F

Fundargerðin framlögð.
ÓÖK fór yfir helstu atriði fundarins.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Skipulagsfulltrúi fór yfir skrifleg svör sveitarfélagsins vegna athugasemda sem bárust sveitarfélaginu við auglýsta tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Vestri-Leirárgarða í Hvalfjarðarsveit.
    Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd felur skipulagsfulltrúa að senda sveitarstjórn skrifleg svör sín og efnislega afstöðu nefndarinnar við athugasemdum Veiðifélags Leirár og landeigenda Eystri-Leirárgarða, til afgreiðslu að nýju skv. ábendingum í afgreiðslubréfi Skipulagsstofnunar.
    Jafnframt er því vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar að staðfesta deiliskipulagið, sem auglýst hefur verið skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og að staðfesting þess efnis verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda.
    Bókun fundar Á fundinum voru lögð fram svarbréf sveitarfélagsins/skipulagsfulltrúa til Veiðifélags Leirár og landeigenda Eystri-Leirárgarða vegna athugasemda sem gerðar voru við deiliskipulagið til samræmis við athugasemdir í afgreiðslubréfi Skipulagsstofnunar.

    Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar staðfestir afgreiðslu Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefndar og framlögð svarbréf vegna málsins og ítrekar fyrri bókun sína um staðfestingu deiliskipulagsins, sem auglýst hefur verið skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, og um að staðfesting deiliskipulagsins verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt er að auk lögboðinna umsagnaraðila verði tillagan kynnt fyrir Slökkviliði Akraness og -Hvalfjarðarsveitar.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 1. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt er að auk lögboðinna umsagnaraðila verði tillagan kynnt fyrir Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar og landbúnaðarnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við verkefnislýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar að gera ekki athugasemd verkefnislýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt er að auk lögboðinna umsagnaraðila verði tillagan kynnt fyrir Slökkviliði Akraness og -Hvalfjarðarsveitar.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að auglýsa deiliskipulagið skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Samþykkt er að auk lögboðinna umsagnaraðila verði tillagan kynnt fyrir Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd telur að erindið og fyrirhuguð áform um að breyta notkun hússins í gistiskála/farfuglaheimili samræmist aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sbr. landnotkunarreit VÞ19 þar sem segir að á svæðinu sé bygging sem áður var grunnskóli og að breytingar á núverandi húsnæði og/eða nýbyggingar, sem falla að nýtingu svæðisins séu heimilar s.s. til gisti- og veitingareksturs.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar að erindið og fyrirhuguð áform um að breyta notkun hússins í gistiskála/farfuglaheimili samræmist aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 sbr. landnotkunarreit VÞ19 þar sem segir að á svæðinu sé bygging sem áður var grunnskóli og að breytingar á núverandi húsnæði og/eða nýbyggingar, sem falla að nýtingu svæðisins séu heimilar s.s. til gisti- og veitingareksturs."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
    Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi skv. 1. mgr. 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.
  • Umhverfis- skipulags- náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd - 25 Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd bendir á að skv. 12. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, komi fram að þegar sérstaklega standi á geti ráðherra að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og hlutaðeigandi sveitarstjórnar, veitt undanþágu frá einstökum greinum skipulagsreglugerðar.
    Nefndin telur ekki vera um sérstakar aðstæður að ræða í þessu tilfelli né heldur að ástæða sé til að skapa fordæmi fyrir breytingum sem þessum.




    Bókun fundar Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
    "Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir og staðfestir bókun nefndarinnar þar sem bent er á að skv. 12. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, komi fram að þegar sérstaklega standi á geti ráðherra að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og hlutaðeigandi sveitarstjórnar, veitt undanþágu frá einstökum greinum skipulagsreglugerðar.
    Nefndin telur ekki vera um sérstakar aðstæður að ræða í þessu tilfelli né heldur að ástæða sé til að skapa fordæmi fyrir breytingum sem þessum."
    Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 6 atkvæðum, BSG var á móti.


    Birkir Snær Guðlaugsson lagði fram eftirfarandi bókun:
    "Ég get ekki verið sammála þessari bókun nefndar og sveitastjórnar.
    Innviðaráðuneyti biður okkur um að skila umsögn.
    Þetta sama mál kom inn á síðasta fund sveitarstjórnar og var því þar vísað aftur í nefnd og hún beðin um umsögn. Núna eins og þá fengum við ekki umsögn heldur skoðun nefndarinnar en samt ætlum við að samþykkja þetta svona. Það þykir mér undarlegt.
    Í bókun nefndarinnar stendur að ekki sé ástæða til að skapa fordæmi fyrir breytingum sem þessum. Það er mjög undarlegt þar sem við tókum vel í sambærilega undanþágu í nóvember síðastliðnum. Og var sú undanþága veitt."

    Til máls tók BSG.

7.Breytt tímasetning næsta sveitarstjórnarfundar.

2310030

Erindi frá oddvita.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að næsti fundur sveitarstjórnar, þann 25. október nk. hefjist kl. 16:30 í stað kl. 15. Ástæðan er ráðstefna um sveitarstjórnarmál á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi sem haldin verður í Breiðinni á Akranesi þann sama dag, stefnt er á að dagskrá ráðstefnunnar standi yfir til klukkan 15:30."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

8.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun Höfða 2023 ásamt greinargerð.

2310013

Erindi frá Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir framlagðan viðauka 1 við fjárhagsáætlun Höfða 2023."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

9.Erindi vegna djúpgáma.

2310017

Erindi frá Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að verða við erindi Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis er varðar umsókn í Framkvæmdasjóð aldraðra vegna djúpgáma og koma að fjármögnun mótframlags á móti framlagi sjóðsins. Sveitarstjórn samþykkir að gert verði ráð fyrir mótframlagi Hvalfjarðarsveitar að fjárhæð kr. 1.456.704 í fjárhagsáætlun fyrir árið 2024."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

10.Þjónustustefna í byggðum og byggðalögum sveitarfélaga.

2310010

Erindi frá Innviðaráðuneyti.
Oddviti lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkir að fela sveitarstjóra og oddvita að hefja vinnu við þjónustustefnu í byggðum og byggðalögum sveitarfélaga."
Tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 7 atkvæðum.

11.Hvítbók um skipulagsmál.

2310004

Erindi frá Innviðaráðuneyti.
Erindið framlagt og vísað til USNL nefndar til kynningar.

12.Umsögn um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024-2038 og aðgerðaráætlun.

2310005

Erindi frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Erindið framlagt.

13.Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fasteignalán til neytenda, nr. 118-2016(lántökuskilyrði vegna íbúðafjárfestinga) 171. mál.

2310009

Erindi frá Efnahags- og viðskipanefnd Alþingis.
Erindið framlagt.

14.Uppbygging innviða fyrir orkuskipti.

2309048

Erindi frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti.
Erindið framlagt og vísað til USNL nefndar til kynningar.

15.140. fundur stjórnar Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis.

2310018

Fundargerð ásamt fylgiskjölum.
Fundargerðin ásamt fylgiskjölum framlögð.

16.934. fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga.

2310014

Fundargerð.
Fundargerðin framlögð.
Fylgiskjöl:

Fundi slitið.

Efni síðunnar