Fara í efni

Fræðslu- og skólanefnd 2014-2018

113. fundur 04. nóvember 2014 kl. 17:00 - 19:00 í stjórnsýsluhúsinu Innrimel 3
Nefndarmenn
  • Hjördís Stefánsdóttir formaður
  • Ólafur Ingi Jóhannesson varaformaður
  • Björn Páll Fálki Valsson aðalmaður
  • Guðmundur Ólafsson aðalmaður
  • Guðrún Dadda Ásmundsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Helena Bergström áheyrnafulltrúi
  • Ragna Kristmundsdóttir áheyrnafulltrúi
  • Jón Rúnar Hilmarsson embættismaður
  • Guðný Kristín Guðnadóttir varamaður
Fundargerð ritaði: Hjördís Stefánsdóttir formaður fræðslu- og skólanefndar
Dagskrá

1.Fræðslu- og skólanefnd - 113

1410002F

Í síðustu fundargerð láðist að taka fram að í forföllum Jóns Rúnars Hilmarssonar skólastjóra, sátu Þórdís Þórisdóttir og Sigríður Lára Guðmundsdóttir fundinn.
  • Fræðslu- og skólanefnd - 113 Stefnumótunarmálin rædd og ákveðið að halda umræðunni áfram og vinna næstu skref á vinnufundi. Nefndin telur rétt að skoða samstarf við Ungmennasamband Borgarfjarðar (UMSB) í fyrirhugaðri stefnumótunarvinnu. Nefndin fagnar því tilraunaverkefni sem er hafið í Heiðarskóla er varðar samstarf við UMSB. Bókun fundar Fræðslu- og skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að samningum við Akraneskaupstað frá 20. desember 2007, verði sagt upp fyrir 1. janúar 2015. Nefndin telur rétt að finna aðra leið til þess að styrkjaíþróttastarf barna og unglinga í sveitarfélaginu svo sem með beinum fjárstyrk til íþróttafélaga.

2.Fjárhagsáætlun 2015 - 2018.

1411012

Óskað verður frekari gagna frá skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og málið tekið fyrir á fundi miðvikudaginn 3.desember nk. Þar mun skólastjóri einnig gera grein fyrir stöðunni.

3.Erindi frá Gídeon félaginu á Akranesi

1410043

Fræðslu- og skólanefnd gerir ekki athugasemd við að Gídeon félagið heimsæki börn í 5. bekk í Heiðarskóla og afhendi þeim Nýja testamentið að gjöf. Heimsóknin skal fara fram í samráði við skólastjóra en þess skal gætt af forráðamönum sé fyrirfram tilkynnt um hana þannig að þeir geti óskað eftir því að þeirra barn sé ekki viðstatt.

4.Ungmennaráð

1411020

Staða ungmennaráðs rædd. Nefndin telur brýnt að kosið verði í ungmennaráð en telur þó rétt að endurskoða starfsreglur þess áður en tilnefnt verður í ráðið.

5.Fundur foreldrafélag leik og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar

1410063

Fundargerðir dagsettar 21.október og 11. nóvember lagðar fram til kynningar.

6.Erindi frá foreldrafélaginu um samvinnu

1411024

Erindi frá foreldrafélagni um samvinnu varðandi fræðslu í forvarnarskyni.

Nefndin tekur vel í erindið og mun skoða það á næsta fundi þegar farið verður nánar yfir fjárhagsáætlun.

7.Ábending varðandi tómstundaávísanir

1411023


Ábending barst frá Ásu Hólmarsdóttur um að veita ungmennum á aldrinum 18 - 20 ára sem eru í námi tómstundastyrk.

Nefndin þakkar góða ábendingu og telur rétt að vísa erindinu til vinnuhóps er vinnur að stefnumótun í Íþrótta- æskulýðs og tómstundamálum hjá sveitarfélaginu.

8.Erindi frá skólastjóra- uppsögn samnings vegna tónlistarskóla

1411031

Sjá lið nr. 5

9.Tillögur starfshóps um málefni frístundaheimila í grunnskólum

1411021

Lagt fram til kynningar

10.Drög að reglum um skólavist utan lögheimilissveitarfélags

1411039

Umræðu frestað

11.Til umsagnar frumvarp til alþingis um breytingu á lögum um framhaldsskóla

1410062

Lagt fram til kynningar

12.Kennsluumhverfið - hlúum að rödd og hlustun

1410044

Lagt fram til kynningar

13.Ungt fólk 2013 framhaldsskólar

1410045

Lagt fram til kynningar

14.Erindi frá skólastjóra um breyttan lokunartíma leik- og grunnskóla

1411042

Fræðslu- og skólanefnd telur aðstæður þannig að ekki sé unnt að verða við erindi skólastjóra um lengri lokun leikskólans Skýjaborgar.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Efni síðunnar