Hallgrímskirkja í Saurbæ – Tónleikar og helgistund
23. mars
20:00
Kór Akraneskirkju flytur kafla úr Hallgrímspassíu Sigurðar Sævarssonar. Sérlega fallegir kórkaflar við passíusálma Hallgríms Péturssonar. Tónskáldið segir frá verkinu og tilurð þess. Tómas Guðni Eggertsson leikur á orgel og stjórnandi kórsins er Sveinn Arnar Sæmundsson. Verið velkomin á þennan sögufræga stað.