Lausar lóðir
Byggingarfulltrúi Hvalfjarðarsveitar, í umboði sveitarstjórnar, sér um úthlutun byggingalóða í Hvalfjarðarsveit sem sveitarfélagið ráðstafar. Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Hvalfjarðarsveit.
Lausar lóðir í Melahverfi.
Hér á kortasjá Hvalfjarðarsveitar má fá nánari upplýsingar um lausar lóðir.
Frekari upplýsingar:
Í gildi er aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2020-2032 frá árinu 2023 sem sjá má á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og á kortasjá Hvalfjarðarsveitar sbr. https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?countyno=3511
Í gildi er deiliskipulag fyrir Melahverfi III frá árinu 2024 sem sjá má á Skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar og á kortasjá Hvalfjarðarsveitar sbr. https://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/display.aspx?numer=19677
„Reglur um lóðaúthlutun“ í Hvalfjarðarsveit má nálgast hér: https://www.hvalfjardarsveit.is/static/files/Reglur/reglur-um-lodauthlutun-i-hvalfjardarsveit-2021.pdf
Í gildi er “Gjaldskrá vegna skipulagsmála, lóðamála, framkvæmdaleyfa og þjónustu skipulagsfulltrúa Hvalfjarðarsveitar” nr. 519/2025 þar sem sjá má kostnað við afgreiðslugjald vegna afgreiðslu erinda hjá Umhverfis- og skipulagsdeild og eftir atvikum vegna umfjöllunar í USNL-nefnd, sbr. https://island.is/stjornartidindi/nr/56c08dc8-9d58-4f35-b3a5-76b291cfbce8
Sjá má „Gjaldskrá fyrir gatnagerðargjöld í Hvalfjarðarsveit” nr. 1447/2025 sbr. https://island.is/stjornartidindi/nr/0f29527c-3075-428a-aadb-35e0bf51b266 .
Deiliskipulag - greinargerð Melahverfis II
Deiliskipulagsbreyting Melahverfi II

Melahverfi 2. áfangi.