Fara í efni

Sumarstörf hjá Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstörf sumarið 2023.

  • Umsjónarmaður Vinnuskóla.
    Um er að ræða starf frá 23. maí til 17. ágúst.
    Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.
  • Flokkstjóri Vinnuskóla.
    Um er að ræða starf frá 23. maí til 17. ágúst.
    Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi.
Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er til og með 27. mars nk. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar. Upplýsingar um störfin gefur Ása Líndal frístunda – og menningarfulltrúi í síma 433-8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is