Fara í efni

Starfsmaður óskast í ræstingar við Leikskólann Skýjaborg

Laus er staða ræstingar við leikskólann Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða um 38% starf (3,05 klst samkvæmt uppmælingu) og fer fram á tímabilinu 16:15 – 19:18 eða eftir samkomulagi, fimm daga vikunnar.

  • Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg.
  • Hreinlæti í fyrirrúmi.
  • Sjálfstæð vinnubrögð.
  • Starfið hentar öllum kynjum.

Um framtíðarstarf er að ræða.  Umsóknarfrestur er til 10. apríl nk. og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Ráðið er í starfið frá lok apríl.

Laun samkvæmt SNS og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi hér að ofan.