Fara í efni

Yfirlýsing sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar lýsir yfir vonbrigðum og harmar hversu seint ákvörðun matvælaráðherra um tímabundna stöðvun hvalveiða er framkomin, einungis sólarhring áður en hvalveiðar áttu að hefjast og starfsfólk þegar mætt til vinnu.

Áhrifin sem þessi fyrirvaralausa og óvænta ákvörðun hefur á samfélagið í Hvalfjarðarsveit og nágrenni, íbúa og atvinnulíf, eru fjárhagslega mikil, bæði bein og óbein.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar tekur ekki afstöðu til hvalveiða með þessari yfirlýsingu en hvetur matvælaráðherra til að endurskoða ákvörðun sína.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar