Fara í efni

Melahverfi útivistarsvæði

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í að byggja upp útivistar- og samkomusvæði fyrir þéttbýlið í Melahverfi. Verkið skal unnið í tveimur áföngum, sem unnir eru hvor á eftir öðrum. Fyrri áfangi skal unninn árið 2022 og verklok seinni áfanga skal skila 15.06.2023. Helstu verkliðir eru jarðvinna, lagnir, rafkerfi, mannvirki, frágangur yfirborðs, gróður og leiktæki.

Verkið skal vinna samkv. útboðs- og verklýsingu, ásamt þeim gögnum sem þar er vísað til.

Gögn verða send bjóðendum. Senda skal póst á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is og tilgreina netpóst sem gögnin verða send á.

Tilboði skal skilað í síðasta lagi kl 11.00 miðvikudaginn 3. ágúst 2022.