Fara í efni

Vorhreinsun 2022

Árleg vorhreinsun í Hvalfjarðarsveit verður samkvæmt neðangreindu og eru íbúar, sumarhúsaeigendur og rekstraraðilar hvattir til að taka til hjá sér fyrir sumarið. Almennt hefur vor- og sumartiltekt gengið vel og mælst vel fyrir og fólk hefur verið duglegt að nýta sér þessa þjónustu og vonumst við til að svo verði áfram.

Á tímabilinu frá 12. maí til og með 30. maí verða gámar staðsettir í Melahverfi, Hlíðarbæ og Krosslandi. Vakin er athygli á breyttri staðsetningu gáma í Melahverfi, en þeir verða á núverandi gámaplani. Moltu geta íbúar sótt á malarplan við enda Bugðumels. Jafnframt eru lóðarhafar hvattir til að halda vexti trjáa og runna á sinni lóð innan lóðamarka við götur og gangstíga.

Eftirfarandi gámar verða til staðar:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn og dekk.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.
  • Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.
  • Kar fyrir rafgeyma og spilliefni.
  • Gámur fyrir moltu.

Frá 1. júní – 31. ágúst gefst íbúum í dreifbýli kostur á að fá tvær gerðir af gámum til afnota í tvo sólarhringa.

Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn og dekk.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.
  • Gámur fyrir almennan (óflokkaðan) úrgang.

Tímabil hreinsunarátaks í frístundabyggðum er frá 1. júní til 31. ágúst ár hvert og eru gámar í boði í 11 daga samfellt innan tímabilsins og getur forsvarsfólk frístundahverfa ákveðið tímasetningu í samráði við sveitarfélagið.

Eftirfarandi gámar eru í boði, og þá þarf að panta með a.m.k. viku fyrirvara:

  • Gámur fyrir timbur.
  • Gámur fyrir járn.
  • Gámur fyrir gróðurúrgang.

Allar pantanir þurfa að berast til Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða með tölvupósti á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.

Lögð er áhersla á að aðilar kynni sér reglur áður en sótt er um gáma en þær má sjá á bakhlið þessa blaðs og á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, https://www.hvalfjardarsveit.is.

Umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar