Vorferð eldri borgara í Hvalfjarðarsveit
11. maí 2026
Vorferðarlag eldri borgara (60 ára og eldri) verður farin þriðjudaginn 2. júní nk.
Farin verður dagsferð um Snæfellsnes.
Brottför kl. 09.00 frá Melahverfi.
Leiðsögumaður er Anna Melsteð sem leiðir okkur um nesið með fróleik og sögum.
Dagskrá ferðarinnar
- Hádegismatur á Narfeyrarstofu, fiskisúpa með öllu því ferska úr Breiðafirði.
- Heimsókn að Hraunhálsi, fræðumst um Eyrbyggjafélagið og skoðum Eyrbyggjarefilinn.
- Heimsókn í nýju Þjóðgarðsmiðstöðina á Hellissandi, fáum kaffi og kruðerí.
- Á heimleið verður stoppað á Miðhrauni, veglegt kvöldverðarhlaðborð með hráefni úr héraði.
Kostnaður við ferðina er kr. 18.000 pr. mann og greiðist við skráningu.
Innifalið í verðinu er rúta, fiskisúpa, leiðsögumaður, heimsókn á Hraunháls, kaffikruðerí og kvöldverðarhlaðborð.
Skráning á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is .
Greiðsla leggist inn á reikning sveitarfélagsins, 0186-26-6303, kt. 630606-1950.
Sendið staðfestingu á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.