Fara í efni

Vinnuskólinn í Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir verkbeiðnum frá íbúum sveitarfélagsins

Kæru íbúar Hvalfjarðarsveitar

 Frá og með 24. júní næstkomandi og fram til 13. ágúst verðum við í því að snyrta opinber svæði sveitarinnar og garða einstaklinga sem leggja inn verkbeiðni hjá okkur. Í ár erum við sæmilega stór hópur og munum við gera okkar besta að taka á móti eins mörgum verkefnum og við getum. Æskilegast er að sækja um verkbeiðni  á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Einnig er hægt að hafa samband á netfangið vinnuskoli@hvalfjardarsveit.is eða í síma 843-4778 (Heiðrún) eða 842-5524 (Valdi).

 Vert er að taka fram að eldri borgarar hafa forgang hjá okkur ef einhver skörun verður, en auðvitað reynum við að klára öll verk.