Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar sumarið 2026
Vinnuskólinn mun starfa frá 12. júní til 7. ágúst sumarið 2026.
Unnið er sjö tíma á dag, frá kl. 08:00 – 15:00 mánudaga til fimmtudaga.
Athygli er vakin á að fyrsti og síðasti vinnudagur verða á föstudegi.
Leitast verður við að veita öllum 14-17 ára unglingum, sem eiga lögheimili í Hvalfjarðarsveit, starf við Vinnuskólann.
Í maí verður umsóknareyðublöðum komið til allra nemenda á skólatíma og farið yfir vinnutíma, laun og reglur í Vinnuskólanum.
Athygli er vakin á því að vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður ekki hægt að bjóða upp á innivinnu fyrir þá sem eru með frjókornaofnæmi þetta sumarið.
Umsókn í Vinnuskólann má skila útfylltri í skólann eða fylla út umsókn
á þjónustugátt Hvalfjarðarsveitar.
Umsóknarfrestur er til og með 25. maí nk.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Anna Guðrún Alexandersdóttir, verkefnastjóri Velferðar- og fræðsludeildar,
fristund@hvalfjardarsveit.is