Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar í fullum gangi
Vinnuskóli Hvalfjarðarsveitar hefur í mörgu að snúast þessa dagana og lætur rigninguna ekki aftra sér frá góðum verkum.
Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu sveitarfélagsins. Meðal verkefna sumarsins hafa verið hreinsun og umhirða opinna svæða og gróðurbeða víðsvegar um sveitarfélagið, ásamt því að sinna slætti garða við heimili íbúa samkvæmt reglum sveitarfélagsins um garðslátt.
Starf vinnuskólans er mikilvægt, ekki aðeins fyrir sveitarfélagið heldur einnig fyrir ungmennin sjálf. Markmið vinnuskólans er að veita unglingum í sveitarfélaginu sumarvinnu eftir skóla, kenna þeim að vinna, bera virðingu fyrir umhverfinu og náttúrunni. Vinnuskólinn hóf störf 12. júní og mun starfa til 7. ágúst, unnið er sjö tíma á dag, frá kl. 08:00–15:00, mánudaga til fimmtudaga.
Þátttakendur og stjórnendur hafa staðið sig einstaklega vel og eiga svo sannarlega hrós skilið.