Fara í efni

Vinna í Hvalfjarðargöngum - tilkynning frá Vegagerðinni

Aðfaranætur miðvikudags, fimmtudags og föstudags, 24. - 27. nóvember, frá kl. 23:00 til 06:30, verður unnið við þrif og viðhald í Hvalfjarðargöngum.

Fylgdarakstur verður á meðan framkvæmdum stendur.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja fyrirmælum starfsmanna.

Akstur neyðarbifreiða hefur ætíð forgang.