Viðurkenning fyrir framúrskarandi starf í læsiskennslu
Þórdís Þórisdóttir, sérkennari við Heiðarskóla, hlaut nýverið viðurkenningu úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur fyrir framúrskarandi starf í læsiskennslu.
Viðurkenningin var afhent á Námstefnu í Byrjendalæsi við Háskólann á Akureyri og er þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Markmið þeirra er að heiðra kennara og leiðtoga sem hafa skarað fram úr í þágu læsismenntunar og vekja athygli á góðum starfsháttum sem styrkja læsi og námsárangur nemenda.
Verðlaunin eru veitt í minningu Rósu Eggertsdóttur, fræðikonu og frumkvöðuls á sviði læsiskennslu, sem þróaði aðferðina Byrjendalæsi. Sú aðferð hefur haft mikil áhrif á íslenskt skólastarf og náð til fjölda kennara og nemenda um allt land.
Við mat á tilnefningum er meðal annars horft til fagþekkingar, árangursríkrar kennslu, nýbreytni, námsaðlögunar, samstarfs og framlags til skólasamfélagsins. Viðurkenningin er því mikil heiðursviðurkenning fyrir þann metnað og faglega starfsemi sem einkennir starf Þórdísar Þórisdóttur.
Hvalfjarðarsveit óskar Þórdísi innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu og þakka henni fyrir ómetanlegt framlag til læsis og velferðar nemenda skólans.