Viðhorfskönnun á kjördag 16. maí nk.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að samhliða sveitarstjórnarkosningum á kjördag, 16. maí nk., verði framkvæmd óbindandi viðhorfskönnun, meðal kjörgengra íbúa, um afstöðu til sameiningar við önnur sveitarfélög.
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti að lagðar yrðu fyrir eftirfarandi spurningar:
Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög?
[ ] Hlynnt(ur).
[ ] Hvorki né/tek ekki afstöðu.
[ ] Andvíg(ur/t).
Ef hlynnt(ur), hvert horfir þú til?
[ ] Akraneskaupstaðar
[ ] Borgarbyggðar
[ ] Kjósarhrepps
[ ] Annað: ________________
Viðhorfskönnunin fer eingöngu fram á kjördag og verður aðgengileg á kjörstað. Það er valfrjálst að taka þátt í viðhorfskönnuninni.
Ítrekað er að um óbindandi viðhorfskönnun er að ræða en ekki kosningu. Niðurstöður hennar munu því ekki fela í sér bindandi ákvörðun, en getur nýst sem vísbending og gagnlegt innlegg í áframhaldandi umræðu og framtíðargreiningar fyrir næstu sveitarstjórn.