Fara í efni

Viðburðir á Hvalfjarðardögum 2024

Nú er komið að því að skipuleggja Hvalfjarðardaga.

Óskað er eftir samstarfi við einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki í Hvalfjarðarsveit fyrir Hvalfjarðardaga sem haldnir verða helgina 16.-18. ágúst nk. en aðaláhersla verður á laugardaginn 17. ágúst.

Með ykkar þátttöku og öflugu samstarfi er hægt að halda áfram að bjóða upp á fjölbreytta viðburði og skemmtun sem bæði íbúar og gestir hafa áhuga á að sækja og njóta. Þau sem hafa áhuga á að halda viðburð á Hvalfjarðardögum er bent á að hafa samband við menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar á póstfangið hvalfjardardagar@hvalfjardarsveit.is fyrir 1.apríl nk.

Bent er á að hægt er að sækja um í menningarsjóð Hvalfjarðarsveitar fyrir viðburðarhaldi á Hvalfjarðardögum. Styrkumsóknir skulu vera í samræmi við reglur sjóðanna sem finna má á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar: https://www.hvalfjardarsveit.is/
is/thjonusta/ithrottir-og-tomstundamal/ithrotta-aeskulyds-og-menningarmal-samthreglur

Umsóknir skulu undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur til að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða. Mikilvægt er að greinargóðar upplýsingar komi fram í umsókninni og fylgigögnum hennar, eins og óskað er eftir sbr. reglur sjóðanna.

Til að uppfylla skilyrði styrkveitingar þarf eftirfarandi að koma fram í umsókn:
Markmið, lýsing og tilefni umsóknar
Styrkupphæð sem óskað er eftir
Tíma- og verkáætlun
Kostnaðaráætlun
Önnur fjármögnun
Félög og/eða hópar sendi inn ársreikning síðastliðins árs og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.
Heimilt er að vísa frá umsóknum ef fullnægjandi gögn/upplýsingar koma ekki fram.

Umsóknarfrestur í menningarsjóðinn er til og með 1. apríl 2024.
Úthlutun verður lokið fyrir 1. júní 2024 skv. reglum sjóðanna.

Umsóknir skulu berast til:
Hvalfjarðarsveit
Menningarsjóður Hvalfjarðarsveitar
Innrimel 3, 301 Akranes
eða á netfangið:
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is