Fara í efni

Vettvangsheimsóknir sveitarstjórnar og sveitarstjóra

Fulltrúar úr sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar og sveitarstjóri fóru í vettvangsheimsóknir mánudaginn 8. júní sl. í stofnanir sveitarfélagsins þar sem starfsemi, aðstaða og uppbyggingarverkefni voru skoðuð.

Heimsóknin hófst í Heiðarborg þar sem farið var yfir og skoðaðar þær umfangsmiklu framkvæmdir sem nú standa yfir við nýtt íþróttahús og endurbætur á mannvirkinu í heild. Þar er um að ræða eitt af stærstu og mest spennandi uppbyggingarverkefnum sveitarfélagsins um þessar mundir. Framkvæmdir ganga vel og munu skapa enn betri aðstöðu fyrir íþróttir, hreyfingu, félagsstarf og fjölbreytta viðburði í sveitarfélaginu.

Mikil eftirvænting ríkir gagnvart verkefninu og verður spennandi að taka hið endurnýjaða mannvirki og nýja íþróttahúsið í notkun þegar sumri hallar. Ljóst er að framkvæmdin mun marka tímamót fyrir samfélagið og styrkja enn frekar þá mikilvægu þjónustu og aðstöðu sem Hvalfjarðarsveit býður íbúum sínum.

Einnig var komið við á leikskólanum Skýjaborg og í Heiðarskóla þar sem rætt var við stjórnendur um starfsemina, helstu verkefni og framtíðarsýn. Jafnframt var húsakostur og aðstaða barna og starfsfólks skoðuð. Á báðum stöðum fengu nýkjörnir fulltrúar og sveitarstjóri innsýn í öflugt og metnaðarfullt starf sem unnið er daglega í þágu barna og ungmenna í sveitarfélaginu.

Vettvangsheimsóknir sem þessar eru mikilvægur þáttur í starfi sveitarstjórnar. Þær skapa tækifæri til að kynnast starfseminni af eigin raun, eiga samtal við stjórnendur og starfsfólk og fylgjast með þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni.

Hér með fylgja nokkrar myndir sem sveitarstjóri tók í ferðinni, því miður eru engar myndir úr heimsókn í Heiðarskóla.