Fara í efni

Vatnsveitustyrkir fyrir lögbýli

Þann 1. febrúar n.k. opnar Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016.

Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á heimasíðu Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.

Eftirfarandi fylgigögn skulu fylgja með umsókninni:

  • Mat úttektaraðila á þörf býlis fyrir framkvæmd
  • Staðfest kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
  • Teikningar sé um byggingar að ræða
  • Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitafélaga, nr. 32/2004

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Ennfremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt á framkvæmdinni.

Vakin er athygli á því að þeir umsækjendur sem áttu samþykkta umsókn á sl. ári en luku ekki framkvæmdum þurfa að sækja um aftur.

Upplýsingasíða Matvælastofnunar um vatnsveitustyrki