Fara í efni

Vatnsveitur fyrir lögbýli – opnað fyrir umsóknir 1. febrúar 2023

Þann 1. febrúar n.k. opnaði Matvælastofnun fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveitna á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum, nr. 180/2016 með síðari breytingum.

Umsókn um styrk til vatnsveituframkvæmda (nr. 10.06) er í þjónustugátt MAST sem er aðgengileg á heimasíðu Matvælastofnunar. Umsækjandi skráir sig inn með Íslykli eða rafrænum skilríkjum. Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar n.k. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa, þ.e. kostnaðar við vatnsupptöku, þar með talin borun eftir vatni og dælur, vatnsgeyma og leiðslu frá vatnsbóli að bæjarvegg. Ennfremur telst til stofnkostnaðar þóknun fyrir úttekt á framkvæmdinni.

Nánari upplýsingar um umsóknir má finna á vef MAST: Vatnsveitur fyrir lögbýli