Fara í efni

Vatnsleikfimi 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit

Vatnsleikfimi hefst mánudaginn 8. september nk. í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg
Leiðbeinandi er Hanna Þóra Guðbrandsdóttir.

Vatnsleikfimi 60 ára og eldri fer fram í Heiðarborg alla mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10:50 til 11:30 á tímabilinu september 2025 - maí 2026.

Vatnsleikfimin er skemmtileg leið til líkamsræktar, frábær aðferð til að styrkja vöðva, bæta úthald og auka liðleika. Áhersla er lögð á að hver og einn vinni eftir sinni getu.
 
Vinsamlegast skráið ykkur í vatnsleikfimi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 433-8500 eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.
Í boði er að kaupa hádegismat í Heiðarskóla þá daga sem vatnsleikfimin er, skráning nauðsynleg.

Einhverja daga verður leiðbeinandi ekki til staðar en frjálst er að mæta í sundlaugina og gera æfingar.

Umsjón með félagsstarfi aldraðra hefur Freyja Þöll Smáradóttir,  deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar.