Fara í efni

Útleiga á beitarhólfum við Melahverfi

Sveitarfélagið auglýsir til leigu beitarhólf fyrir hross í landinu Melahverfi 2.
Útleiguhólfin eru 8 talsins og er útleigutímabilið frá 1.júní – 31.desember, sjá meðfylgjandi kort.
Íbúar sveitarfélagsins eru með forgang á útleigu á beitarhólfum.
Fleiri en einn geta þurft að deila hólfum, fer eftir fjölda hrossa.

 Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið bygging@hvalfjardarsveit.is
Í tölvupóstinum þarf að koma fram:

  • Nafn og kennitala umsækjanda.
  • Heimilisfang umsækjanda.
  • Númer á hólfi sem sótt er um.
  • Fjöldi hrossa sem óskað er eftir úthlutun fyrir.

 Umsóknir þurfa að berast sveitarfélaginu fyrir 28.maí 2020.

Kort af beitarhólfum má sjá hér