Fara í efni

Útleiga á beitarhólfi við Melahverfi

Sveitarfélagið auglýsir til leigu hólf nr. 8 fyrir hross í landinu við Melahverfi 2.

Útleigutímabilið er frá 1.júní – 31. desember 2022. Íbúar sveitarfélagsins eru með forgang á útleigu á beitarhólfum.

Áhugasamir eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is

Í tölvupóstinum þarf að koma fram:

  • Nafn og kennitala umsækjanda.
  • Heimilisfang umsækjanda.
  • Fjöldi hrossa sem óskað er eftir úthlutun fyrir.

Umsóknir þurfa að berast sveitarfélaginu fyrir 10.maí 2022.

Kort af beitarhólfi má sjá á meðfylgjandi mynd.