Fara í efni

Úthlutun úr Styrkvegasjóði Vegagerðarinnar

Sveitarfélagið sótti um styrk í Styrkvegasjóð Vegagerðarinnar á sl. ári, vegna framkvæmda ársins 2026.

Sótt var um vegna ofaníburðar og styrkingar á aðkomuvegum að Núparétt, Svarthamarsrétt, Reynisrétt og vegna vegarins um Álfholtsskóg.

Samþykkti Vegagerðin að veita styrk til verkefnanna að upphæð 3,0 milljónir króna af liðnum Styrkvegir í vegaáætlun árið 2026 en skilyrði er að styrknum verði ráðstafað fyrir árslok 2026.

Umhverfis- og skipulagsdeild / verkefnastjóri framkvæmda og eigna mun nú í framhaldi vinna að undirbúningi þessara framkvæmda í samráði við landeigendur á svæðinu.