Fara í efni

Úrslit ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026

Verðlaunamynd 2026
Verðlaunamynd 2026

Nú liggja fyrir úrslit ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðardaga 2026 en þema keppninnar í ár var „Hvalfjarðarsveit – Allt milli himins og jarðar.“

Þátttakan í keppninni var einstaklega góð en alls bárust 120 myndir frá 22 þátttakendum. Menningar- og markaðsnefnd valdi 10 myndir úr innsendum myndum sem þóttu skara fram úr og voru þær til sýnis í stjórnsýsluhúsinu á Hvalfjarðardögum.

Þá fór fram rafræn kosning þar sem almenningi gafst kostur á að velja sína uppáhaldsmynd. Alls voru greidd 180 atkvæði og réðu niðurstöður kosningarinnar úrslitum keppninnar.

Úrslitin urðu eftirfarandi:
1. sæti –  með 35% atkvæða. Ljósmyndari: Stefanía Rakel 
2. sæti – með 22,8% atkvæða. Ljósmyndari: Eyjólfur Matthíasson
3. sæti – með 17,2% atkvæða. Ljósmyndari: Guðrún Magnúsdóttir

Við óskum vinningshöfum innilega til hamingu.

Menningar- og markaðsnefnd færir öllum þeim sem sendu inn myndir kærar þakkir fyrir þátttökuna. Einnig eru færðar bestu þakkir til allra þeirra sem tóku þátt í kosningunni og lögðu þannig sitt af mörkum við að velja vinningsmynd ársins.

Hér má sjá þær 10 myndir sem var kosið um.