Fara í efni

Urðarmelur, nýtt íbúðarhverfi í Melahverfi

Gatnagerð vegna nýrrar götu, Urðarmels, í Melahverfi er á lokastigi.
Verktaki í verkinu er Borgarverk ehf og er áætlað að hann skili götunni tilbúinni til sveitarfélagsins með lögnum, malbiki og lýsingu í maí 2026.
Frágangur gangstétta og kantsteina verður gerður síðar þegar uppbygging húsa við götuna verður komin áleiðis.
Um verkfræðihönnun sá Efla verkfræðistofa, Verkís verkfræðistofa sá um verkeftirlit en umsjón verksins var að öðru leyti í höndum verkefnastjóra framkvæmda og eigna hjá Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar.

Á 441. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar sem haldinn var þann 21. apríl sl., var byggingarlóðum úthlutað til þeirra sem sótt höfðu um lóðir við Urðarmel, alls var sótt um 6 lóðir og 3 til viðbótar til vara, af þeim 12 lóðum sem auglýstar voru á tímabilinu 11. mars til og með 13. apríl 2026.

Um var að ræða 3 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir og 5 fjögurra íbúða raðhúsalóðir eða samtals 12 lóðir fyrir 3 einbýlishús og 28 íbúðir í par- og raðhúsum.

Úthlutunin fór fram skv. reglum sveitarfélagsins og var dregið um þær lóðir þar sem fleiri en einn umsækjandi var um að ræða.

Óúthlutaðar lóðir má sjá hér