Fara í efni

Ungmennaþing Vesturlands

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25. - 27.september 2026.

Um er að ræða samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV).

Markmið með þinginu er að:
- fá ungt fólk af öllu Vesturlandi saman
- stuðla að uppbyggingu í þágu ungs fólks á öllu Vesturlandi
- skapa vettvang fyrir samtal ungmenna við ráðamenn
- kynnast öðrum ungmennum, njóta og hafa gaman

Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14-25 ára.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 ungmenni og verður lágmarksfjöldi tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja ábyrgðaraðili.

Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi.

Sjá nánar hér: Ungmennaþing Vesturlands 25.-27.september 2026 

Hægt er að sækja um með því að smella á hlekkinn hér: Ungmennaþing Vesturlands 25.-27.september 2026 

Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2026.