Fara í efni

Ungmennaráð kynnti áherslur sínar fyrir sveitarstjórn

Ábendingar Ungmennaráðs Hvalfjarðarsveitar verða teknar til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þetta samþykkti sveitarstjórn eftir að fulltrúar ráðsins kynntu áherslur sínar á sameiginlegum fundi.

Gott samtal átti sér stað milli fulltrúa Ungmennaráðs og sveitarstjórnar og tóku allir fundarmenn þátt í umræðunum. Allir fimm fulltrúar Ungmennaráðs sátu fundinn, þau Anton Teitur Ottesen, formaður, Díana Ingileif Ottesen, Hrafn Sölvi Vignisson, Valgarður Orri Egilsson og Veronika Jara Heimisdóttir.

Það er ánægjulegt að sjá ungt fólk láta sig málefni sveitarfélagsins varða og koma áherslum sínum á framfæri, framtíðin er björt.