Fara í efni

Afhending undirskriftalista

Miðvikudaginn 24. ágúst sl. kom hópur íbúa og afhenti sveitarstjórn undirskriftalista gegn vindmylluframkvæmdum í landi Brekku. Undirskriftarlistinn sem inniheldur um 1500 undirskriftir er áskorun til sveitarstjórnar og Skipulagsstofnunar að koma í veg fyrir fyrirhugaðar framkvæmdir við vindmyllugarð á Brekkukambi. Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessu tilefni.