Undirrituðu samstarfssamning um rekstur Bókasafns Akraness
Fulltrúar Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar undirrituðu í dag samstarfssamning um rekstur Bókasafns Akraness. Safnið mun þar með þjónusta einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit, en markmið samningsins er að veita íbúum Hvalfjarðarsveitar aðgengi að safnkosti og þjónustu Bókasafns Akraness.
Hvalfjarðarsveit mun greiða 10% af heildarrekstrarkostnaði safnsins auk 5% álags vegna umsýslukostnaðar. Samningurinn tekur gildi frá 1. janúar 2026 og er ótímabundinn.
Sveitarfélögin munu því standa sameiginlega að því að veita aðgang að fjölbreyttu safnaefni og upplýsingum á mismunandi formi, efla menningar- og vísindastarfsemi, menntun, símenntun, atvinnulíf, íslenska tungu, ánægjulestur og upplýsingalæsi.
Líkt og kunnugt er veitir Bókasafn Akraness metnaðarfulla þjónustu árið um kring, en samningurinn mun meðal annars tryggja að háskólanemar í Hvalfjarðarsveit fái aðgang að Svövusal allan sólarhringinn án endurgjalds, eldri borgarar og þeir sem ekki komast á safnið geta nýtt sér heimsendingu bóka með aðstoð starfsfólks Hvalfjarðarsveitar og nemendur í 4. bekk fá boð á safnkynningu. Þá verða kynningar á sumarlestri fyrir grunnskólanema, reglulegar leikskólaheimsóknir og jólasögustundir í boði fyrir íbúa beggja sveitarfélaga. Safnið býður einnig upp á listsýningar, fjölbreyttar smiðjur og menningarviðburði yfir árið. Í Heiðarborg verður komið upp aðstöðu til að skila bókum og börn geta dvalið á bókasafninu eftir skóla þar til frístundastarf hefst. Öll ný verkefni safnsins munu jafnframt ná til íbúa Hvalfjarðarsveitar.
Hvalfjarðarsveit fagnar samstarfinu sem tryggir betur rekstrargrundvöll safnsins og gerir það að verkum að fleiri fái að njóta þeirrar starfsemi og metnaðarfullu þjónustu sem þar er í boði.