Fara í efni

Umsóknir um styrki til Styrktarsjóðs Hvalfjarðarsveitar

Samkvæmt samþykktum sveitastjórnar er hér með auglýst eftir umsóknum til Styrktarsjóðs Hvalfjarðarsveitar.

Styrkumsóknir skulu undirritaðar af umsækjanda og/eða aðila sem heimild hefur að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjanda ef um félag eða hópa er að ræða. Mikilvægt er að greinargóðar upplýsingar komi fram í umsókninni. Heimilt er að vísa frá umsóknum ef fullnægjandi upplýsingar koma ekki fram. 

Félög og/eða hópar sendi inn ársreikning síðastliðins árs og fjárhagsáætlun yfirstandandi árs.

Reglur sjóðsins er að finna á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2018.

Umsóknir skulu berast til:
Styrktarsjóður Hvalfjarðarsveitar
Stjórnsýsluhúsinu
Innrimel 3 
301 Akranes

Eða á netfangið:
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is