Fara í efni

Umhverfisviðurkenning Hvalfjarðarsveitar 2026

Umhverfisviðurkenning Hvalfjarðarsveitar, sem var endurvakin sumarið 2025 eftir margra ára hlé, er hugsuð sem hvatning til íbúa um að hugsa vel um nærumhverfi sitt og veita þeim viðurkenningu sem þykja skara fram úr í snyrtimennsku og umhirðu garða sinna eða býlis.

Á Hvalfjarðardögum 2026 sem haldnir voru um nýliðna helgi voru viðurkenningar fyrir árið 2026 afhentar.

Viðurkenninguna í ár hlutu fyrir snyrtilegasta býlið ábúendur í Hlíð, þar búa hjónin Ingibjörg Unnur Pétursdóttir og Eyjólfur Jónasson, Héðinn Eyjólfsson og  Ozilene Laurindo. Í umsögn dómnefndar kemur m.a. fram að öll bæjartorfan á Hlíð er falleg ásýndar, aðkoman snyrtileg og umhverfi bygginga vel við haldið.

Fyrir snyrtilegasta garðinn hlutu viðurkenninguna íbúar að Ósi 3, hjónin Olga Magnúsdóttir og Helgi Ómar Þorsteinsson. Í umsögn dómnefndar þar kemur fram að um sé að ræða fallegan og vel skipulagðan garð sem hægt er að njóta allt árið um kring. Fjölbreytt úrval af plöntutegundum sem mynda skemmtilegt samspil sín á milli.

Hvalfjarðarsveit óskar ofangreindum innilega til hamingju með verðskuldaðar viðurkenningar.

Viðurkenninguna afhentu Bjarki Borgdal formaður umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd, Þóra Margrét Júlíusdóttir sveitarstjórnarfulltrúi og fulltrúi dómnefndar ásamt Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjóra.