Fara í efni

50% starf umhverfisfulltrúa laust til umsóknar

Laust er til umsóknar starf umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 50% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Umhverfisfulltrúi hefur yfirumsjón með umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins, þjónustar íbúa Hvalfjarðarsveitar á þeim málefnasviðum, er ráðgefandi fyrir sveitarstjórn, landbúnaðarnefnd og umhverfis,- skipulags- og náttúruverndarnefnd og vinnur skv. samþykktum þeirra. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar:

  • Yfirumsjón með umhverfis- og náttúruverndarmálum sveitarfélagsins.
  • Yfirumsjón með hreinlætis-, sorp- og fráveitumálum sveitarfélagsins.
  • Yfirumsjón með opnum svæðum, gróðursetningu og uppgræðslu.
  • Yfirumsjón með meindýraeyðingu og mengunarvörnum í sveitarfélaginu.
  • Yfirumsjón með útivistarsvæðum og gönguleiðum, merking og kortlagning.
  • Yfirumsjón verkefna er varða gróðurvernd, fjallskil, refa- og minkaeyðingu og hunda- og kattahald.
  • Undirbúningur nefndarfunda, lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála.
  • Gerð starfs- rekstrar-, og framkvæmdaáætlana fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra.

Umhverfisfulltrúi ber ábyrgð á meðferð, skráningu og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Umhverfisfulltrúi er starfsmaður landbúnaðarnefndar.

Almennt stjórnunarsvið:
Umhverfisfulltrúi starfar og stjórnar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um landbúnaðarmál og skipulags- og umhverfismál sveitarfélaga. Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
  • Þekking og reynsla af umhverfismálum er æskileg.
  • Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.

Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsóknir skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is

Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með um 690 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is