Fara í efni

Tilkynning frá slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á Vestfjörðum, Vesturlandi,
Höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Suðurlandi hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna
hættu á gróðureldum.
Meðferð opins elds hefur jafnframt verið bönnuð á svæðinu frá og með deginum í dag (11.05.2021)
Slökkviliðið hvetur almenning og sumarhúsaeigendur til að huga að eftirfarandi:

  •  Kveikja ekki eld innan sem utandyra (kamínur, grill, varðelda, flugelda og fleira)
  •  Nota ekki einnota grill sem og venjuleg grill
  •  Kanna flóttaleiðir við og frá sumarhúsum
  •  Huga að brunavörnum (slökkvitæki, reykskynjarar) gera flóttaáætlun
  •  Vinna ekki með verkfæri sem hitna mikið eða valdið geta neista
  •  Fjarlægja eldfim efni við hús (huga að staðsetningu gaskúta)
  •  Bleyta gróður í kringum hús þar sem þurrt er

Hægt er að kynna sér betur hættur vegna gróðurelda á: www.grodureldar.is