Fara í efni

Tilkynning frá Hitaveitufélagi Hvalfjarðar – áríðandi

Rafmagnslaust er og vinnur Rarik að því að koma rafmagninu aftur á en sökum þessa er hitaveitulaust á starfssvæði veitunnar og eru íbúar og eigendur sumarhúsa beðnir að vitja húsa sinna.

Um leið og rafmagn kemur á að nýju verður hafist handa við að koma vatni aftur á svæðið.