Fara í efni

Tilboð í yfirborðsfrágang götu

Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í verkið:
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit
Háimelur - yfirborðsfrágangur

Verkið felur m.a. í sér gerð jöfnunarlags undir malbik, malbikun götu og gangstétta, gerð kantsteina, ídrátt götuljósastrengs og uppsetningu ljósastaura við götuna Háamel og að hluta Brekkumel í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Lengd götunnar er um 262 m.

 Helstu magntölur eru:
Uppsetning götuljósastaura                            10 stk
Ídráttur götuljósastrengs                                  260 m
Mulningur undir malbik                                    2.610 m²
Malbik                                                                      2.408 m²
Vélsteyptur kantsteinn                                       543 m
Fylling og jöfnun undir þökur og þökulögn  80 m²

 Skiladagur verksins er 1. september 2020. Útboðsgögn verða afhent rafrænt og án endurgjalds.

Hægt er að óska eftir gögnum hjá Hvalfjarðarsveit á netfangið bygging@hvalfjardarsveit.is eða í síma 433-8500.

 Tilboð verða opnuð 13. maí 2020, kl. 10:00 á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.