Fara í efni

Þverun Akrafjallsvegar við Litlu Fellsöxl vegna vinnu við hitaveituæð

Í kvöld, mánudaginn 9. mars klukkan 20:00 verður Akrafjallsvegi lokað vegna vinnu á endurnýjun aðveitu frá Deildartungu, umferð verður beint suður með Akrafjalli á meðan framkvæmdir standa yfir.

 Vinna mun hefjast mánudaginn 9. mars klukkan 20:00 og stendur fram á þriðjudaginn 10. mars til klukkan 20:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Merkingar áætlun er sýnd hér til hliðar.